Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, formaður Íhaldsflokksins og borgarstjóri Lundúnaborgar, er ómyrkur í máli er hann tjáir sig um nýjustu vendingar í afstöðu Trumps Bandaríkjaforseta til Úkraínustríðsins. Trump hefur nú ákveðið að slaka á refsiaðgerðum gegn Rússlandi og beimila sölu á rússneskri olíu. Hann hefur heimilað viðskipti með rússneska dísilolíu fram til 7. apríl 2027. Einnig sagði hann að Rússar myndu þegar í stað leggja til 300 þúsund tonn af dísilolíu á heimsmarkað.
Boris skrifar á Facebook:
„Það er viðbjóðslegt að Bandaríkin séu nú að aflétta refsiaðgerðum á rússneskt eldsneyti og fráleitt með öllu að kenna Úkraínu um hækkun eldsneytisverðs, sem hófst augljóslega þegar Hormússund lokaðist.
Pútín lætur myrða saklausa úkraínska borgara á hverjum degi. Úkraínumenn berjast fyrir lífi sínu. Hvíta húsið virðist hins vegar staðráðið í að láta bandaríska ökumenn fjármagna blóðbað Pútíns. Það mun ekki virka og ég efast um að það hafi mikil áhrif á eldsneytisverð.
Ef við viljum að rússnesk olía og gas komist aftur á heimsmarkað, skulum við þá binda enda á þetta stríð – með frjálsri, fullvalda og sjálfstæðri Úkraínu.“
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, brást ókvæða við þessum áformum Bandaríkjamanna og gagnrýndi sérstaklega að Bandaríkjamenn væru að gera þetta á meðan rætt væri um frið í Úkraínu. Sagði hann þetta vera afmælisgjöf til Pútíns sem fagnað 74 ára afmæli í vikunni.
Trump brást harkalega við gagnrýni Úkraínuforseta, sagði hann vinna gegn friði og að Úkraína þyrfti nýjan forseta.