Pressan

Fyrrum búddamunkur dæmdur í 50 ára fangelsi fyrir stórfelld fjársvik

Mynd
Búddastytta. Mynd:Wikimedia/Neil Satyam

Fyrrum búddamunkur í Taílandi var nýlega dæmdur í 50 ára fangelsi fyrir að misnota peningagjafir sem áttu að renna til líknardeildar fyrir HIV-sjúklinga.

The Independent skýrir frá þessu og segir að hinn dæmdi, sem heitir Alongkot Poonmook en hét áður Phra Ratcha Wisutthiprachanat, hafi stofnað líknardeildina í Wat Phra Bat Namphu musterinu í Lopburi héraðinu og verið ábóti þar.

Hann neyddist til að hætta sem munkur á síðasta ári í kjölfar þess að hann var handtekinn ásamt samstarfsmanni sínum, Seksan Sapsubbsakul, sem var fjáröflunarstjóri fyrir líknardeildina.

Þeir voru báðir sakfelldir fyrir ítrekaðan fjárdrátt og peningaþvætti.

Alongkot var dæmdur í 742 ára fangelsi en Seksan slapp með 386 ár. Báðir dómarnir voru sjálfkrafa styttir í 50 ára fangelsi en það er hámarksrefsing samkvæmt lögum. Þeir voru einnig dæmdir til að greiða líknardeildinni sem svarar til rúmlega 1.100 milljóna íslenskra króna.

Musterið hefur lengi notið mikillar virðingar í Taílandi þar sem meirihluti landsmanna eru búddistar. En ímynd musterisins hefur beðið mikinn álitshnekki vegna fjársvikamálsins.

Sum búddamusteri í Taílandi eru mjög vel stödd fjárhagslega vegna peningagjafa frá almenningi. En nokkur mál hafa komið upp þar sem háttsettir munkar hafa verið sakaðir um misnotkun á gjafafé.