Pressan

Vinstrimaðurinn Hitler Mussolini kjörinn bæjarstjóri

Mynd
Samsett mynd/Getty

Nafni einræðisherranna alræmdu Hitler og Mussolini hefur verið kjörinn bæjarstjóri í bænum Queropalca í Perú nú í vikunni. 

Hitler Mussolini Simeon Flores er 45 ára og er í mið-vinstriflokknum Ahora Nacion, sigraði hann bæjarstjórakosningarnar með 34% atkvæða. Samkvæmt opinberum gögnum í Perú var Hitler Mussolini hægrimaður áður en hann varð vinstrimaður en hann sagði sig úr hægriflokki Keiko Fujimori forsætisráðherra í fyrra. Queropalca er í dreifbýli langt uppi í Andesfjöllunum.

Hitler Mussolini starfaði áður sem forstöðumaður fjárfestingabanka. Nafnar hans, Adolf Hitler og Benito Mussolini voru einræðisherrar Þýskalands og Ítalíu fyrir og í síðari heimsstyrjöldinni, eru þeir báðir alræmdir í mannkynssögunni. 

Hitler Mussolini er ekki fyrsti nafni Adolfs Hitler til að vera kjörinn bæjarstjóri í Perú en Hitler Alba var bæjarstjóri í bænum Yungar á árunum 2011 til 2014, notaðist hann við slagorðið „Góði Hitler“. Sagði hann í viðtali að hann liti ekki á nafnið sitt sem eitthvað öðruvísi en Juan eða Sebastian. Hitler Alba bauð sig aftur fram árið 2018 og var þá einnig í framboði Lennin Vladimir, sem heitir eftir rússneska byltingaleiðtoganum. 

Nafnið alræmda er ekki einskorðað við Perú en í fyrra var Adolf Hitler Uunona kjörinn á þing í Namibíu, hann lét síðar taka af millinafnið Hitler og er nú aðeins Adolf Uunona.