Alonzo Lunsford, fyrrverandi liðþjálfi í Bandaríkjaher sem lifði af fjöldamorðin í Fort Hood-herstöðinni árið 2009, segist ætla að vera viðstaddur aftöku morðingjans Nidals Hasans.
Hann styður að Hasan verði tekinn af lífi af aftökusveit en er mótfallinn áformum um að sýna aftökuna í beinni útsendingu fyrir almenning eins og til stendur.
Lunsford varð fyrir sjö skotum þegar Hasan, sem starfaði sem geðlæknir í Bandaríkjaher, hóf skothríð í heilbrigðisbyggingu herstöðvarinnar í Texas. Þrettán manns létust í árásinni og sjálfur lamaðist Hasan fyrir neðan mitti eftir að hann var skotinn af lögreglu.
Í viðtali við BBC segist Lunsford telja að aftaka með skotvopnum sé viðeigandi refsing fyrir Hasan. Aðrar aftökuaðferðir, til dæmis með banvænni sprautu eða í gasklefa, væru í raun greiði við hann.
„Ég ætla að vera þarna. Áður en þeir hleypa af vil ég að hann horfi í augun á mér og ég í augun á honum. Ég vil að hann viti að honum mistökst, ég er enn hér,“ sagði Lunsford.
Þóttist vera látinn til að lifa af
Lunsford rifjaði upp skelfilega atburðarásina í viðtalinu. Hann reyndi að flýja út um bakdyr byggingarinnar þegar Hasan hóf skothríðina en var skotinn fyrir ofan vinstra augað. Hann skreið á bak við skrifborð og fékk þá tvö skot til viðbótar í bakið.
„Á þeim tímapunkti þóttist ég vera dauður,“ sagði hann.
Þegar árásarmaðurinn hélt áfram tókst Lunsford að hjálpa særðum hermanni út úr byggingunni. Hasan kom hins vegar aftan að þeim og skaut Lunsford aftur.
Hann segist enn vera ásóttur af minningunni um barnshafandi konu sem reyndi að fá Hasan til að hlífa sér.
„Við heyrðum skothvell og það síðasta sem þessi stúlka sagði var: „Guð minn góður, barnið mitt, barnið mitt.“
Þrátt fyrir allt segist Lunsford hafa fyrirgefið Hasan vegna kristinnar trúar sinnar. Hann segist ekki geta jafnað sig á því sem gerðist nema fyrirgefa árásarmanninum
Vill ekki að aftakan verði að skemmtiefni
Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur tilkynnt að aftaka Hasans sé fyrirhuguð og að almenningi verði gert kleift að fylgjast með henni í beinni útsendingu.
Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur sagt mikilvægt að almenningur sjái afleiðingar svo alvarlegra glæpa.
Lunsford er ósammála þeirri ákvörðun og óttast meðal annars hvaða áhrif útsendingin gæti haft á ungt fólk.
„Þetta er ekki eitthvað sem fólk ætti að horfa á sér til skemmtunar,“ sagði hann. Hann telur þó eðlilegt að eftirlifendur árásarinnar og aðstandendur fórnarlambanna fái að fylgjast með aftökunni.
Áformin hafa einnig sætt gagnrýni bandarískra stjórnmálamanna úr báðum stærstu flokkunum. Chris Murphy, öldungadeildarþingmaður Demókrataflokksins, hefur kallað hugmyndina viðbjóðslega, en repúblikaninn Thom Tillis segir opinberar aftökur frekar eiga heima í einræðisríkjum.
Verði aftakan framkvæmd verður hún sú fyrsta á vegum Bandaríkjahers í meira en 60 ár. Lögfræðingar telja þó að lagalegar hindranir geti komið í veg fyrir fyrirhugaða beina útsendingu og því er alls óvíst hvort af henni verður.