Pressan

Þolandinn í Cornell 7-málinu skelfingu lostin eftir að nafni hennar var lekið - „Annars verður blóði úthellt“

Mynd
Atburðurinn átti sér stað í húsi á lóð Cornell-háskóla, í New York ríki, fyrir tveimur árum en komst fyrst í hámæli nýlega. Mynd: sach1tb. Wikimedia Commons

Ung kona höfðaði í september einkamál gegn sjö karlmönnum sem hún sakar um að hafa hópnauðgað sér árið 2024 þegar þau voru öll nemendur við Cornell-háskólann. Málið hefur sett allt á hliðina í Bandaríkjunum og vakið mikla reiði, en konan sakar háskólann um að hafa brugðist skyldu sinni til að vernda hana og refsa þeim sem brutu gegn henni. Samkvæmt stefnu konunnar var henni byrlað ketamín og hópnauðgað í samkvæmi á vegum bræðralagsins Chi Phi.

Konan hefur ekki verið nafngreind af yfirvöldum eða fjölmiðlum heldur hefur verið notast við almenna dulnefnið Jane Doe. Málið hefur klofið bandarísku þjóðina í tvær fylkingar, önnur styður Jane Doe og hin styður meinta gerendur. Seinni fylkingin telur sig nú hafa grafið upp raunverulegt nafn ungu konunnar og hefur þessu nafni verið deilt víða í netheimum. Sumir láta sér þó ekki nægja að dreifa nafninu.

Að sögn lögmanns ungu konunnar, Thomas Giuffra, lifir hún nú við stöðugan ótta. Hún hefur límt pappa fyrir gluggana á heimili foreldra sinna því hún óttast að hún verði fyrir skotárásinni. Á þriðjudaginn barst lögreglu í heimabæ Jane Doe ógnvekjandi símtal um að karlmaður hefði skotið móður sína til bana og svo beint vopninu að systur sinni. Lögreglan tók þessu eðlilega alvarlega og kallaði út sérsveitina og sendi að heimilisfanginu sem var gefið upp. Þegar þangað var komið sá sérsveitin að bíll var að bakka úr innkeyrslunni. Sérsveitarmenn hröðuðu sér að bifreiðinni og handtóku þar tvo unga karlmenn. Þá kom eldri maður út úr húsnæðinu og spurði hvað væri eiginlega í gangi. Þarna hafði ekkert morð átt sér stað. Þetta var heimili foreldra Jane Doe og ungu mennirnir í bílnum voru bróðir hennar og kærasti.

Samkvæmt lögmanninum var það mikil mildi að bróðir Jane og kærasti hennar hafi brugðist rétt við afskiptum sérsveitarinnar. Bróðirinn lyfti strax höndum og kærastinn lagðist í jörðina. Hefðu þeir brugðist við með öðrum hætti hefði voðinn verið vís.

„Einhver hefði geta brugðist við með röngum hætti og einhver hefði getað dáið,“ sagði lögmaðurinn. Falska tilkynningin er nú til rannsóknar hjá lögreglu. Jane er skelfingu lostin eftir atvikið en eins hafa henni borist líflátshótanir, ýmsum persónuupplýsingum hennar hefur verið lekið og hatrinu rignir inn. Eftir að lögmaður Jane kom fram undir nafni hefur síminn hans ekki stoppað. Lögmaðurinn deildi upptöku af einu símtali með CNN en þar heyrðist karlmaður segja:

„Ég segi þetta tæpitungulaust, þú ættir að ráðleggja skjólstæðingi þínum að falla frá málshöfðuninni. Annars verður blóði úthellt.“

Giuffra segist hafa séð ýmislegt á ferli sínum en þessi staða sé fordæmalaus.

„Ég verð ekki oft sleginn yfir hlutum, en nú er ég sleginn. Ég vil ekki bera ábyrgð á andláti,“ segir lögmaðurinn og bætir við að foreldrar Janes séu í miklu uppnámi.

„Pabbinn ... hefur áhyggjur af dóttur sinni. Hann trúir ekki að svona eitthvað hafi gerst vegna þess að hún reyndi að standa með sjálfri sér og rjúfa þögnina. En foreldrarnir eru sterkir einstaklingar og þau munu vernda dóttur sína.“

Draumar Janes séu að engu orðnir vegna meintrar hópnauðgunar og viðbragðanna við málshöfðun hennar. Hún sé nú einangruð og treysti sér varla út úr húsi. Móðir hennar þurfti að taka sér leyfi frá vinnu til að styðja dóttur sína.

The Independent greinir frá