Eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti tók aftur við embætti ákvað hann að gera vel við fyrrverandi tengdadóttur sína, Kimberly Guilfoyle, enda hafði hún verið dyggur stuðningsmaður forsetans og liðsinnt honum í kosningabaráttu hans árið 2020. Á síðasta ári skipaði Trump hana sem sendiherra Bandaríkjanna í Grikklandi. Nú er Guilfloyle í klípu en hún er sökuð um spillingu.
The Wall Street Journal birti á dögunum frétt þar sem fjallað var um samskipti Guilfoyle við athafnamanninn Eric Deters í aðdraganda þess að hún var skipuð í sendiherrastöðuna. Þar virðist Guilfoyle freista þess að fá Deter til að greiða 100 þúsund dala kreditkortaskuld hennar, „með slíkum hætti að það skilji ekki eftir sig pappírspor“. Fréttin byggir á gögnum sem miðillinn fékk beint úr höndum Deters, sem er fyrirtækjaeigandi í Kentucky og einn styrktaraðila forsetans, en hann hafði verið í samskiptum við Guilfoyle í von um að hún gæti veitt honum aðgengi að æðstu embættismönnum ríkisstjórnarinnar.
Hættu að skrifa
Bera samskiptin með sér að Guilfoyle hafi verið meðvituð um að mannorð hennar gæti skaðast ef samskiptin yrðu opinberuð, en hún bað Deter ítrekað um að eiga ekki í skriflegum samskiptum við sig. Guifoyle vildi ræða málin símleiðis í gegnum dulkóðaða samskiptaforritið Signal.
„Eric, ég vildi að þú gætir hætt því að skjalfesta þetta allt. Það er mjög hættulegt og ekki gagnlegt fyrir mig þegar þú gætir bara einfaldlega hringt í mig á Signal,“ skrifar hún í einum skilaboðum og í öðrum: „Þvílík martröð, þú munt bókstaflega kosta mig sendiherrastöðuna, hættu að skrifa.“
Á meðan þau áttu í samskiptum virðist Deter reglulega hafa greitt Guilfoyle fyrir þá þjónustu sem hún hafði lofað að veita, að tala hans máli eða veita honum aðgengi að toppunum í ríkisstjórninni. Loks fékk Deter nóg og sagðist ekki með góðri samvisku geta greitt Guilfoyle meira, hann hefði ekkert fengið í staðinn fyrir peningana og hjónaband hans væri nú í húfi, en þar með virðist athafnamaðurinn gefa í skyn að eiginkona hans hafi ekki verið sátt með greiðslurnar til Guilfoyle.
Guilfoyle hefur neitað ásökununum en lögmaður hennar hefur dregið trúverðugleika gagnanna sem The Wall Street Journal hefur í höndunum í efa. Rétt er þó að árétta að gögnin komu beint frá Deter.
Heilagur sannleikur
Varaforseti Bandaríkjanna, JD Vance, var spurður út í málið og sagði það óforsvaranlegt að freista þess að hagnast á því að veita aðgengi að embættismönnum ríkisstjórnarinnar. Hann vildi þó ekki tjá sig um þetta tiltekna mál. Marco Rubio utanríkisráðherra neitaði að svara spurningum WSJ um málið.
„Þið gangið um og haldið að bara því einhver heimildarmaður sagði ykkur eitthvað og þið skrifuðuð frétt um það þá sé þetta bara heilagur sannleikur. Það er ekki heilagur sannleikur. Það er ekki heilagur sannleikur fyrir mér. Þannig gerum við ekki hlutina hér.“
Deter segir í samtali við CNN að Guilfoyle hafi leitað til hans rétt áður en þingið staðfesti skipun hennar í sendiherrastólinn. Þar hafi hún sagt: „Ég þarf 100.000 til að borga niður American Express kortaskuldina mína, annars verð ég ekki sendiherra Grikklands.“
Quid pro quo
Telur Deter augljóst að bæði hann og Guilfoyle hafi litið á samskipti þeirra sem quid pro quo, eða greiði fyrir greiða. Hann hafi borgað henni peninga og fyrir það ætlaði hún að veita honum og hagsmunum hans eyra ríkisstjórnarinnar. Þegar Guilfoyle bað hann að borga kortaskuldina hafi hann verið kominn með nóg, hún hafi aldrei efnt sinn hluta.
„Það lék enginn vafi á því að þetta var quid pro quo. Hún vissi að hún væri tilefnd sem sendiherra og reyndi að hylma yfir þetta [samskipti hennar við Deter]. Hún vildi þvætta þetta með því að slengja fram þeirri hugmynd að þetta væru greiðslur vegna ráðgjafastarfa.“
Þetta er ekki eini skandallinn í kringum Guilfoyle en leiðtogi demókrata í utanríkismálanefnd Bandaríkjaþings hefur krafist þess að það verði rannsakað hvort sendiherrann hafi misnotað stöðu sína til að greiða götuna fyrir gríska orkufyrirtækið Aktor, svo sem með því að taka hagsmunagæslumann fyrirtækisins með sér á opinbera fundi og láta að því liggja við gríska ráðamenn að Bandaríkin gætu komið ríkisstjórn þeirra frá völdum.