Pressan

Missti foreldra sína í umferðarslysi og helgaði líf sitt leitinni að ökumanninum

Mynd
Franck með foreldrum sínum.

Í tæp sex ár reyndi Frakkinn Franck Furnari að finna ökumanninn sem ók á foreldra hans og varð þeim báðum að bana. Hann gafst aldrei upp þótt lögregla hefði hætt rannsókn málsins. Hann safnaði undirskriftum, fór í hungurverkfall og leitaði sjálfur að vísbendingum.

Nú, átta árum eftir slysið, hafa loksins orðið vendingar í málinu sem gætu orðið til þess að réttlætinu verði fullnægt.

Harmleikurinn átti sér stað að morgni 11. október 2018 í frönsku borginni Roubaix, skammt frá landamærum Belgíu.

Foreldrar Francks, hjónin Agnès og Philippe Furnari, voru 81 og 83 ára gömul. Þau voru á leið á sjúkrahús þegar bifreið ók á þau á gangbraut fyrir utan sjúkrahúsið.

Ökumaðurinn flúði af vettvangi og skildi hjónin eftir stórslösuð. Agnès lést skömmu síðar og Philippe lést daginn eftir.

Neitaði að gefast upp

Franck var staðráðinn í að finna manninn sem hafði orðið foreldrum hans að bana. Hann vildi fá svör við því hvað hefði gerst og sjá til þess að ökumaðurinn yrði dreginn til ábyrgðar.

Rannsókn lögreglu skilaði hins vegar litlum árangri. Árið 2022 var málinu lokað án þess að nokkur hefði verið ákærður.

Franck neitaði að sætta sig við þá niðurstöðu.

Hann hóf undirskriftasöfnun þar sem hann hvatti fólk sem kynni að búa yfir upplýsingum um slysið til að stíga fram. Alls skrifuðu um 46 þúsund manns undir áskorun hans.

Hann lagði einnig rauða bílnum sínum fyrir utan sjúkrahúsið þar sem ekið hafði verið á foreldra hans. Bíllinn varð með tímanum tákn fyrir baráttu hans fyrir réttlæti.

Í febrúar 2024 greip Franck til örþrifaráða og fór í hungurverkfall sem stóð yfir í 18 daga. Hann vonaðist til að vekja athygli á málinu og fá fram nýjar upplýsingar sem gætu hjálpað lögreglu.

Baráttan tók sinn toll

Dauði foreldranna og baráttan fyrir réttlæti höfðu djúpstæð áhrif á Franck. Líf hans snerist að stórum hluta um að finna ökumanninn og hann átti erfitt með að sætta sig við að enginn hefði þurft að svara til saka.

Í september 2024 urðu svo önnur hörmuleg tímamót í fjölskyldunni þegar Franck svipti sig lífi.

Sambýliskona hans, Valérie, hefur síðan haldið baráttunni áfram.

Hún segir að Franck hafi sjálfur unnið mikla rannsóknarvinnu eftir að lögregla lokaði málinu. Þegar þau fengu aðgang að rannsóknargögnum hafi komið í ljós vísbendingar sem lögregla hafði ekki fylgt eftir.

Franck hafi þá farið sjálfur af stað, reynt að afla frekari upplýsinga og komið nýjum vísbendingum til lögreglu.

Loksins grunaður  eftir öll þessi ár

Í desember 2025, rúmum sjö árum eftir slysið, urðu loks mikilvæg tímamót í rannsókninni þegar 43 ára karlmaður var formlega gerður að sakborningi í málinu.

Maðurinn hafði áður hlotið fjölda refsidóma og hafði raunar verið yfirheyrður af lögreglu skömmu eftir slysið. Þá neitaði hann að hafa verið á vettvangi og sagðist ekkert vita um það sem gerðist. Hann gengur nú laus en þarf að hlíta ákveðnum skilyrðum yfirvalda á meðan rannsókn málsins stendur yfir.

Valérie greindi sjálf frá tíðindunum á Facebook og sagði mikilvægt að allir þeir sem hefðu stutt Franck í gegnum árin fengju að vita af þessum tímamótum.

Í samtali við franska dagblaðið La Voix du Nord segir hún að Franck hefði líklega verið stoltur af þessum tíðindum.

„Hann hefði örugglega sagt: Nú hefur mér tekist það sem ég ætlaði mér.“

Hún telur þó ólíklegt að tíðindin hefðu veitt honum raunverulegan létti. Líf hans hafi aldrei orðið samt eftir dauða foreldranna.

„Fyrir honum var lífið fyrir og eftir 11. október 2018. Það var ómögulegt fyrir hann að snúa aftur til þess sem áður var.“

Valérie segist sjálf eiga erfitt með að gleðjast yfir tíðindunum. Hún hafi horft upp á manninn sem hún elskaði brotna niður á árunum eftir slysið.

„Skaðinn er skeður. Ég er í áfalli fyrir lífstíð. Í sex ár þurfti ég að tína Franck saman, bút fyrir bút. Hann var ástin í lífi mínu.“

Hún vonast nú til þess að málið fari loks fyrir dóm.

„Þessi saga verður að fá endapunkt. Við höfum aldrei verið jafn nálægt markmiðinu.“

Byggt á umfjöllun frönsku fjölmiðlanna La Voix du Nord og La Dépêche.

---

Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg. Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.