Pressan

Hryllingshúsið í Þýskalandi: Kona sögð hafa sætt pyntingum mánuðum saman

Mynd
Húsið sem um ræðir er í rólegu hverfi í bænum Soest. Mynd: Skjáskot WDR

Fjórir einstaklingar, þar af tvö ungmenni undir lögaldri, hafa verið ákærðir fyrir hrottalegt ofbeldi gegn konu sem er sögð hafa sætt pyntingum, niðurlægingu og nauðgunum mánuðum saman í raðhúsi í þýska bænum Soest.

Málið hefur vakið mikinn óhug í Þýskalandi og hefur húsið þar sem brotin eru sögð hafa átt sér stað fengið viðurnefnið „Hryllingshúsið í Soest“.

Samkvæmt þýska miðlinum Welt eru sakborningarnir fjórir 16, 17, 25 og 29 ára. Þau eru ákærð fyrir meðal annars stórfelldar líkamsárásir, nauðganir og frelsissviptingu. Réttarhöldin hefjast í Arnsberg í dag, 12. október.

Fannst hálfnakin og bundin á verönd

Konan, sem er fædd árið 1993, er sögð hafa sætt ítrekuðu ofbeldi frá júlí til nóvember árið 2025. Á þeim tíma hafi hún meðal annars verið barin, niðurlægð og beitt kynferðislegu ofbeldi. Tveir sakborninganna eru ákærðir fyrir nauðgun.

Ofbeldið er sagt hafa náð hámarki í nóvember þegar konan var hengd upp á bjálka með bundnar hendur, að hluta til afklædd. Þar er hún sögð hafa hangið klukkustundum saman.

Það var nágranni sem kom auga á konuna seint að kvöldi 3. nóvember. Hún var þá hálfnakin og bundin á verönd raðhússins. Nágranninn gerði lögreglu þegar viðvart.

Konan er sögð hafa verið meðvitundarlaus þegar lögregla kom á vettvang. Hún þurfti í kjölfarið að dvelja mánuðum saman á sjúkrahúsi.

Þrjú börn bjuggu í húsinu

Samkvæmt heimildum Welt innan þýska dómskerfisins er 29 ára karlmaður talinn vera aðalsakborningurinn í málinu. Hann bjó í húsinu, sem stendur í rólegu íbúðahverfi, ásamt þáverandi sambýliskonu sinni og þremur börnum þeirra. Sambýliskona mannsins og fórnarlambið þekktust áður en meint ofbeldisbrot hófust.

Málið hefur vakið upp hugrenningatengsl um hið alræmda „Hryllingshús í Höxter“, þar sem þýsk hjón lokkuðu konur til sín og beittu þær hrottalegu ofbeldi. Tvær kvennanna létust af völdum misþyrminganna. Málið kom upp árið 2016 en maðurinn var dæmdur í ellefu ára fangelsi og eiginkona hans í þrettán ára fangelsi.

Fullorðnu sakborningarnir tveir eru enn í gæsluvarðhaldi. Þrátt fyrir að tveir hinna ákærðu séu undir lögaldri verða réttarhöldin opin almenningi.

Áætlað er að réttarhöldin standi fram til 17. desember næstkomandi.