Pressan

Hljóp maraþon í veikindaleyfi og var rekinn – Nú þarf vinnuveitandinn að greiða honum háar bætur

Mynd
Mynd/Pixabay

Hollenskur maður sem var rekinn úr starfi eftir að hafa hlaupið maraþon í veikindaleyfi hefur unnið mál gegn fyrrverandi vinnuveitanda sínum.

Fyrirtækið hafði ráðið einkaspæjara til að fylgjast með manninum og taldi þátttöku hans í hlaupinu sanna að hann væri vinnufær. Dómstólar komust hins vegar að annarri niðurstöðu, að því er fjölmiðlar í Hollandi greina frá.

Maðurinn hóf störf hjá hollenskri ferðaskrifstofu í júlí 2024 en fór í veikindaleyfi í desember sama ár vegna alvarlegra sjóntruflana af völdum vöðvaslensfárs, langvinns sjúkdóms sem veldur vöðvaslappleika.

Hann hafði þó upplýst trúnaðarlækni vinnuveitandans um að hann héldi áfram að hlaupa fjórum sinnum í viku.

Einkaspæjarar fylgdust með honum

Stjórnendur ferðaskrifstofunnar efuðust um að maðurinn væri óvinnufær og réðu einkaspæjara til að fylgjast með honum. Þeir komust meðal annars að því að hann hafði tekið þátt í Rotterdam-maraþoninu 13. apríl 2025 og lokið hlaupinu á innan við þremur og hálfri klukkustund.

Vinnuveitandinn taldi slíka frammistöðu ósamrýmanlega veikindaleyfinu og rak manninn fyrirvaralaust vegna trúnaðarbrests. Maðurinn sætti sig ekki við uppsögnina og leitaði réttar síns.

Dýrkeypt ákvörðun

Bæði undirréttur í Rotterdam og áfrýjunardómstóllinn í Haag komust að þeirri niðurstöðu að uppsögnin hefði verið ólögmæt.

Dómararnir bentu á að geta til að hlaupa maraþon sannaði ekki að maðurinn væri fær um að sinna starfi sínu, enda hefðu veikindin einkum valdið honum sjóntruflunum. Þá hefði hann ekki leynt hlaupaæfingum sínum þegar hann fór í leyfið.

Eftirlit einkaspæjaranna var jafnframt talið óhóflegt inngrip í einkalíf hans og framkoma vinnuveitandans verulega ámælisverð.

Ferðaskrifstofunni var gert að greiða manninum meira en 60 þúsund evrur í bætur, jafnvirði rúmlega átta milljóna íslenskra króna. Að auki þarf fyrirtækið að greiða tæplega þrjú þúsund evrur í vangoldin laun og meira en fimm þúsund evrur í málskostnað.