Pressan

Fyrrverandi sjónvarpskona dæmd í lífstíðarfangelsi – Urðu að þrífa blóð af gólfum, veggjum og gluggatjöldum

Mynd
Angelynn Mock. Lögreglumynd.

48 ára kona í Wichita í Kansas, BNA, hefur verið dæmd í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða áttræða móður sína með hnífi á hrekkjavöku í fyrra. Konan, Angelynn Mock, játaði sök í málinu og var dæmd 5. október síðastliðinn. Samkvæmt lögum í Kansas getur hún sótt um reynslulausn eftir 25 ára afplánun.

Lögregla var kölluð að heimili mæðgnanna 31. október 2025 vegna tilkynningar um hnífstungu. Þar fannst móðirin, Anita Avers, liggjandi í rúmi sínu með stungusár. Ostakvörn og hnífar fundust við rúmið. Avers var flutt á sjúkrahús þar sem hún var úrskurðuð látin.

Sjá einnig: Fyrrverandi fréttakona grunuð um voðaverk á hrekkjavökunni

Mock fannst fyrir utan húsið með áverka á höndum. Hún var flutt á sjúkrahús til aðhlynningar og síðan handtekin, grunuð um morð af fyrstu gráðu.

Mock gaf mismunandi skýringar á atburðunum í yfirheyrslum hjá lögreglu. Hún hélt því meðal annars fram að móðir hennar hefði verið ógnandi og að hún hefði þurft að verja sig. Einnig sagðist hún hafa verið að segja móður sinni frá atvinnuviðtali þegar sú síðarnefnda varð öfundssjúk og elti hana með hníf.

Missti starfið vegna drykkjuskapar

Mock hafði áður starfað sem fréttaþulur í sjónvarpi en missti starf sitt vegna áfengisvandamála. Hún glímir við geðræn vandamál en var engu að síður úrskurðuð sakhæf.

Við ákvörðun refsingar lýsti stjúpdóttir hinnar myrtu því hvernig hún og eiginmaður hennar hefðu þurft að þrífa blóð af gólfum, veggjum og gluggatjöldum daginn eftir morðið. Dýna og teppi voru einnig fjarlægð úr svefnherberginu.

Hin látna, Anita Avers, starfaði sem hjóna- og fjölskylduráðgjafi. Hún hafði mikinn áhuga á listsköpun, prjónaskap og matargerð og lagði metnað sinn í að hjálpa öðrum. 

Angelynn Mock hefur lýst því yfir að hún hyggist ekki áfrýja dómnum.

Sjá nánar um málið hér.