31 árs Dani hefur verið dæmdur í eins árs fangelsi fyrir líkamsárás sem varð sænska lögreglumanninum Christian Zedig að bana í Kaupmannahöfn í sumar.
Zedig var í fríi ásamt vinum sínum þegar hann reyndi að ganga á milli manna í átökum. Hann fékk þungt högg í hálsinn, féll í jörðina og lést þremur dögum síðar.
Sænska ríkisútvarpið, SVT, greinir frá niðurstöðu málsins en það hefur vakið mikla athygli bæði í Danmörku og Svíþjóð. Dómurinn hefur jafnframt vakið umræður um danska löggjöf og hversu vægar refsingar geti verið fyrir líkamsárásir sem draga fólk til dauða.
Ætlaði að stilla til friðar
Atvikið átti sér stað þann 30. júní á Íslandsbryggju í Kaupmannahöfn. Zedig, sem starfaði sem lögreglumaður í Svíþjóð og var búsettur í bænum Eksjö, hafði ferðast til Danmerkur ásamt vinum sínum.
Hópurinn ætlaði að horfa á leik Noregs og Fílabeinsstrandarinnar á HM í knattspyrnu þegar átök brutust út í kjölfar þess að Norðmenn skoruðu mark.
Zedig reyndi að ganga á milli þeirra sem áttu í átökunum en varð sjálfur fyrir höggi frá hinum 31 árs gamla Dana. Höggið lenti á hálsi hans með þeim afleiðingum að slagæð rofnaði. Hann var fluttur á sjúkrahús en lést af áverkum sínum þremur dögum síðar.
Gat ekki útskýrt hvers vegna hann sló
Árásarmaðurinn hafði lengi neitað sök en breytti afstöðu sinni við upphaf réttarhaldanna og játaði brotið.
Samkvæmt frétt SVT átti hann erfitt með að horfast í augu við fjölskyldu Zedigs og aðra viðstadda í réttarsalnum. Hann sat löngum stundum með höfuðið í höndum sér og horfði niður.
Þegar hann var spurður hvers vegna hann hefði slegið Zedig sagðist hann ekki geta gefið neina skýringu á því. Hann kvaðst þó gera sér fulla grein fyrir því hversu skelfilegar afleiðingar árásin hefði haft fyrir fjölskyldu hans.
Eiginkona Zedigs gaf einnig skýrslu fyrir dómi. Hún lýsti lífi þeirra hjóna og rifjaði upp kvöldið örlagaríka þegar henni barst símtal um að eitthvað alvarlegt hefði komið fyrir eiginmann hennar.
Áður komist í kast við lögin
Saksóknari hafði krafist þess að maðurinn yrði dæmdur í að minnsta kosti eins árs fangelsi fyrir líkamsárásina og féllst dómstóllinn á þá kröfu.
Við ákvörðun refsingarinnar var meðal annars horft til þess að maðurinn hefði sýnt árásargjarna hegðun, að hann hefði áður komist í kast við lögin og að höggið hefði orðið Zedig að bana.
Auk fangelsisrefsingarinnar var maðurinn úrskurðaður í bann við því að sækja skemmtistaði að næturlagi. Hann hefur ákveðið að áfrýja ekki dómnum.
Fjölskylda Zedigs hefur jafnframt gert skaðabótakröfu á hendur manninum upp á tæplega 1,9 milljónir danskra króna, jafnvirði rúmlega 34 milljóna íslenskra króna. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um kröfuna og verður fjallað um hana síðar.
Gæti leitt til lagabreytinga
Málið hefur vakið athygli vegna þess hve mild fangelsisrefsingin er miðað við afleiðingarnar.
Danski blaðamaðurinn Caroline Clante segir í samtali við SVT að málið geti jafnvel orðið til þess að dönsk löggjöf verði tekin til endurskoðunar.
Hún bendir á að í Danmörku sé við ákvörðun refsingar fyrir líkamsárásir fyrst og fremst horft til verknaðarins sjálfs, fremur en afleiðinganna fyrir brotaþolann. Þar sé munur á danskri og sænskri réttarframkvæmd.