Pressan

Bandaríkjamenn ætla að sýna aftöku fjöldamorðingja í beinni útsendingu

Mynd
Nidal Hasan verður leiddur fyrir aftökusveit Bandaríkjahers. Mynd/Getty

Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur staðfest að fyrirhugaðri aftöku Nidals Maliks Hasans, sem myrti 13 manns í skotárás á herstöðina Fort Hood í Texas árið 2009, verði streymt í beinni útsendingu á netinu.

Hasan á að vera tekinn af lífi af aftökusveit þann 3. desember og verður það fyrsta aftakan á vegum Bandaríkjahers í meira en 65 ár, gangi áformin eftir.

Ákvörðunin hefur vakið töluverða athygli og harða gagnrýni. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í sjónvarpsviðtali á miðvikudag að tryggt yrði að almenningur gæti fylgst með aftökunni. Varnarmálaráðuneytið staðfesti síðan í gærkvöldi að henni yrði streymt í beinni útsendingu.

Skaut á hermenn sem reyndu að flýja

Hasan var geðlæknir í Bandaríkjaher þegar hann framdi árásina 5. nóvember 2009. Hann gekk þá inn í byggingu á herstöðinni þar sem hermenn biðu eftir læknisskoðunum áður en þeir yrðu sendir til hernaðarstarfa erlendis.

Þrettán létust og 32 særðust. Hasan lamaðist fyrir neðan mitti eftir að hafa verið skotinn af lögreglumanni og hefur síðan verið bundinn hjólastól.

Við réttarhöldin árið 2013 viðurkenndi hann að hafa framið árásina en gerði litla tilraun til að verja sig. Lögmenn hans töldu hegðunina benda til þess að hann vildi sjálfur hljóta dauðadóm. Í skjölum sem hann lak til fjölmiðla kom fram að hann teldi sig geta orðið píslarvott ef hann yrði tekinn af lífi.

„Forseti sem vill sjónarspil“

Áform stjórnvalda um að sýna aftökuna í beinni útsendingu hafa vakið áleitnar spurningar um framkvæmd dauðarefsinga í Bandaríkjunum, ekki síst í kjölfar misheppnaðrar aftöku Christu Pike í Tennessee.

Elisabeth Semel, sérfræðingur í dauðarefsingum við Kaliforníuháskóla í Berkeley, segir við AP að ákvörðunin veki alvarlegar spurningar um tilgang stjórnvalda.

„Þetta er forseti sem vill sjónarspil og ég held að það séu einmitt skilaboðin sem hann ætlar sér að senda,“ segir hún um Donald Trump Bandaríkjaforseta.

Ekki liggur fyrir hvort Hasan muni reyna að fá aftökunni frestað, en sérfræðingar telja að lagaleg úrræði gætu tafið hana verulega.