Átján ára sænskur ríkisborgari hefur verið handtekinn grunaður um að hafa myrt Alexander Aslani, 57 ára þekktan lýtalækni, á læknastofu hans í Marbella á Spáni á miðvikudagskvöld.
Um var að ræða afar óhugnanlegt morð þar sem Aslani var skotinn í höfuðið fyrir framan viðskiptavini sína. Morðið hefur vakið mikinn óhug en lögregla rannsakar meðal annars hvort um leigumorð hafi verið að ræða og hvort óánægður fyrrverandi sjúklingur kunni að tengjast málinu.
Samkvæmt umfjöllun Daily Mail réðst grímuklæddur maður inn á Cirumed-læknastofuna, skammt frá miðborg Marbella, og skaut Aslani til bana. Árásarmaðurinn flúði síðan af vettvangi á vespu. Talið er að samverkamaður hans hafi ekið svörtum Audi-bíl.
Hinn grunaði var handtekinn sólarhring eftir morðið. Lögregla reynir nú að komast að því hvort einhver hafi ráðið hann til verksins og þá hvers vegna.
Óánægður sjúklingur sendi hótanir
Ýmsar kenningar hafa verið til rannsóknar um ástæður morðsins.
Daily Mail vísar í umfjöllun spænska fréttamiðilsins 101TV sem greindi frá því að lögregla rannsakaði hvort morðið gæti tengst andláti auðugs sjúklings frá Suður-Ameríku sem sagður var hafa látist á skurðarborðinu. Samkvæmt þeirri kenningu gætu ættingjar sjúklingsins hafa ráðið leigumorðingja til að hefna fyrir dauða hans.
Heimildarmenn nákomnir Aslani hafa hins vegar vísað því á bug að nokkur sjúklingur hans hafi látist við slíkar aðstæður.
Spænska dagblaðið Sur greindi jafnframt frá því að kona sem hafði gengist undir meðferð hjá Aslani hefði sent honum hótanir aðeins nokkrum klukkustundum fyrir morðið. Konan var sögð ósátt við árangur meðferðarinnar og hafði krafist endurgreiðslu.
Ekki hefur verið staðfest hvort þessar hótanir tengist morðinu.
Læknir margra frægra einstaklinga
Aslani var vel þekktur í heimi lýtalækninga og hafði um 200 þúsund fylgjendur á Instagram. Hann hafði áður starfað á sjúkrahúsum í Bretlandi, meðal annars í Lundúnum og nágrenni Birmingham.
Meðal sjúklinga hans voru raunveruleikastjörnurnar Chloe Sims úr The Only Way Is Essex og Hannah Elizabeth úr Love Island. Báðar höfðu opinberlega greint frá því að hafa gengist undir fegrunaraðgerðir hjá honum.
Aslani var einnig þekktur fyrir mannúðarstarf sitt og fór árlega til Indlands þar sem hann framkvæmdi ókeypis aðgerðir á börnum með skarð í vör.
Hann lætur eftir sig eiginkonu, Jeannine, og tvö börn. Eiginkona hans er talin hafa verið stödd í húsnæði við hlið læknastofunnar þegar árásin var gerð.