Svefninn er okkur öllum mikilvægur, þó að mörg okkar láti svefninn oft sitja á hakanum vegna fjölmargra verkefna og/eða lendum í svefnvandamálum. Mörg vöknuð við úrill eftir lítinn svefn og sturtum svo í okkur koffíni yfir daginn til að halda okkur vakandi.
„Ef þú ert að grípa í kaffi eða sykur til að komast í gegnum daginn, þá er það yfirleitt vegna svefnleysis, ekki koffínskorts,“ segir Brenda Heather, næringarfræðingur hjá Meo Nutrition.
Hversu margar klukkustundir af svefni þurfa fullorðnir á nóttu?
„Flestir fullorðnir þurfa sjö til níu klukkustundir á nóttu og heiðarlega svarið er að mjög fáir eru undantekningin sem þeir halda að þeir séu,“ segir Heather.
„Eldri einstaklingum nægja oftast sjö tímar, unglingar þurfa átta til tíu tíma og börn á skólaaldri geta þurft allt að ellefu tíma.“
Heather útskýrir þó einnig að matur og svefn „tengist saman“, eitthvað sem gleymist „í flestum greinum um svefn“.
Hún segir að of lítill svefn hafi áhrif á hormónin sem stjórna hungri, sem þýðir að það er líklegt að þú finnir fyrir meiri hungri og borðir meira daginn eftir, og sækir í „kolvetni frekar en grænmeti“. Þetta endar síðan í neikvæðri hringrás, eins og sérfræðingurinn bætir við: „Þá raskar slæmt fæðuval svefni enn frekar.“
Þó að mörgr okkar skemmti sér rækilega um helgar, þá „hjálpar áfengi fólki að sofna hraðar en eyðileggur seinni hluta næturinnar.“ Máltíðin sem þú gætir pantað þegar þú staulaðist heim klukkan fjögur að morgni hjálpar ekki heldur, eins og Heather bætir við: „Stórar, þungar máltíðir rétt fyrir svefn geta valdið bakflæði.“
Hvernig á að bæta svefninn
Að fá góðan nætursvefn getur verið auðveldara sagt en gert í ys og þys nútímalífsins.
Heather deilir þó nokkrum ráðum sem fólk getur fylgt til að fá betri gæði í svefnrútínuna:
- Vaknaðu alltaf á sama tíma, líka um helgar
- Hættu að neyta koffíns seinni hluta dags
- Kláraðu að borða tveimur til þremur klukkustundum fyrir svefn
„Svefn er ekki munaður sem maður ávinnur sér eftir að öllu öðru er lokið. Hann er líffræðileg þörf, rétt eins og matur og vatn,“ segir Heather.
Sérfræðingurinn ráðleggur einnig að allir sem sofa í „átta klukkustundir og vakna samt úrvinda“ ráðfæri sig við lækni. „Kæfisvefn, járnskortur og skjaldkirtilsvandamál birtast öll á þennan hátt og er oft litið framhjá því,“ bætir hún við.