Lögreglumönnum var sagt að villihundur eða refur hefði bitið hinn tvítuga Benjamin Day, en raunin var sú að hann skar sig á hendi þegar hann reyndi að sundurlima lík konu sem hann hafði stungið til bana.
Lögreglan í West Midland í Bretlandihefur nú birt myndskeið af handtöku hans frá 21. desember 2025, sem sýnir blæðandi réttarmeinafræðinemann við Háskólann í Worcester nálægt gatnamótum Highview Street og Brewery Street í Dudley.
Day, sem var þá 19 ára, játaði sök í Wolverhampton Crown Court á þriðjudag um að hafa myrt Maríu Saceanu, 24 ára rúmenska konu sem hafði starfað sem vændiskona.
Í réttarhöldunum kom fram að Day væri heltekinn af bandarísku sjónvarpsþáttaröðinni Dexter, sem segir frá lífi raðmorðingja sem sver sjálfum sér eið um að myrða aðeins vonda einstaklinga.
Day lokkaði konuna inn í plastfóðrað „drápsherbergi“í Airbnb íbúð og virðist Day hafa hermt eftir drápsherbergjum úr Dexter þáttunum.
Þar veitti Day konunni 78 stungusár sem ollu dauða hennar.
Day yfirgaf íbúðina um klukkan 00:30 að staðartíma og gekk nokkuð langt í burtu. Síðan, klukkan 00:50, hringdi hann í 112 og bað um læknisaðstoð vegna skurðs á hendi. Lögreglan sagði að hann hefði einnig stöðvað einn af bílum þeirra. Þegar lögreglumenn spurðu hann út í meiðsli hans hélt Day því fram að refur hefði ráðist á hann. Lögreglan efaðist um frásögn hans og hann var handtekinn.
Hvað fann lögreglan í Airbnb íbúðinni?
Síðar sama dag, um klukkan 14:30, fengu lögreglumenn símtal frá leigusala sem sagði að einn af leigjendunum í Bancroft Road hefði fundið blóð neðst í stiganum.
Lögreglan leitaði í húsinu og fann þá lík Saceanu við hliðina á rúminu. Svefnherbergið, gólfið, veggirnir og rúmið höfðu öll verið klædd plastdúk sem hafði verið heftaður við vegginn.
Lögreglumennirnir fundu einnig rúllu af striga sem innihélt nokkra hnífa, heftibyssu og límband. Day hafði einnig borið svuntu, plastskyggni og hreinsiefni í íbúðina, Í dóminum kom fram að hann hefði eytt nokkrum klukkustundum í að undirbúa herbergið. Airbnb-gistingin er í um 32 kílómetra fjarlægð frá heimili hans í Redditch í Worcestershire.
Hvers vegna breytti Benjamin Day málflutningi sínum?
Búist var við að Day myndi bera við sjálfsvörn. Hann myndi einnig segjast hafa komið sér fyrir í herberginu til að taka upp „hyllingarmynd“ til Dexter sem hann gæti birt á TikTok.
Í staðinn breytti hann vörn sinni eftir viðræður við lögmann sinn á öðrum degi réttarhaldanna. Eftir klukkustundar langa töf á þriðjudag sneri hann aftur úr fangaklefunum og fyrir dóminn. Hann brosti, kinkaði kolli til dómritarans og játaði sök. Day var úrskurðaður í gæsluvarðhald. Dómur verður kveðinn upp yfir honum 4. desember.
„Hann skipulagði þetta morð í smáatriðum“
Rannsóknarlögreglumaðurinn Matt Marston, sem stýrði rannsókninni, sagði: „Day var með áráttukenndan persónuleika og varð heltekinn af persónunni Dexter. Hann skipulagði þetta morð í smáatriðum. Þetta var fyrirfram skipulögð grimmileg árás á varnarlausa konu sem var lokkuð að herberginu sem hann hafði leigt.“
„Day veifaði til lögreglumanna og greindi þeim frá uppspunninni sögu um ástæðuna fyrir því að hann hefði meiðst á hendi. Lögreglumönnunum fannst þetta vekja grun og hann var handtekinn. Málið olli okkur hryllingi og hugsanir okkar eru hjá fjölskyldu Maríu á þessari stundu.“