Pressan

Hann varði 28 árum í að ganga umhverfis jörðina - Þetta var það erfiðasta

Mynd
Karl Bushby

Maður, sem hefur varið síðustu tæpu þremur áratugum ævi sinnar í að ganga umhverfis jörðina, hefur opinberað hvað honum hefur þótt erfiðast, eftir að hafa heitið því að „ekkert myndi stöðva hann“ í þessu verkefni hans.

Karl Bushby, sem nú er 58 ára, var aðeins 28 ára gamall þegar hann lagði af stað í Goliath-leiðangurinn sinn árið 1998. Hann hefur varið síðustu 28 árum í að reyna við verkefni sem hljómar nánast ómögulegt: að ganga umhverfis allan hnöttinn án þess að fara í eina einustu flugferð.

Breski ævintýramaðurinn lagði af stað frá Punta Arenas í Chile og hefur síðan ferðast um allan heim um sum af óblíðustu landsvæðum jarðar, áskorun sem hann setti sjálfum sér.

Móðir hans, Angela, hefur beðið eftir því að hann snúi aftur til Hull í Bretlandi, en hún hefur að sögn aðeins séð hann þrisvar sinnum síðan hann lagði af stað árið 1998.

Mynd

Nú hefur Bushby tjáð sig um það sem erfiðast hefur verið í allri þessari upplifun.

„Þegar fólk spyr mig hvað sé erfiðast við það sem ég geri, þá eru það konurnar, það eru samböndin, enginn vafi á því,“ viðurkenndi hann í samtali við YouTube-rásina A Mug Of Life. Hann lýsti þessu sem því erfiðasta sem hann hefur þurft að takast á við í þessari sögulegu ferð.

„Við vorum alltaf staðráðin af lífi og sál, þetta snerist um að láta þetta takast eða deyja,“ sagði Bushby um þá miklu vinnu sem hann og stuðningsnet hans hafa lagt í verkefnið.

„Þegar maður er kominn með þetta hugarfar, þá finnur maður alltaf leið framhjá hverri hindrun sem verður á veginum. Jafnvel þótt það að þurfa að bíða. Eins og í tilviki heimsfaraldra og fjármálakreppa.“

„Sambönd ganga ekki upp. Það virkar kannski fyrir suma, en það hefur ekki virkað fyrir mig. Ég hef átt í nokkrum samböndum. Tvisvar sinnum varð ég ástfanginn.“

 

Fyrsta konan sem hann varð ástfanginn af var frá Kólumbíu; samband sem hann sagði hafa falið í sér „sjö ára fyrirhöfn“. „Í Asíu,“ bætti hann við, „átti ég í þriggja ára sambandi við japanska stúlku. Ég varð ástfanginn upp fyrir haus. Svo skall heimsfaraldurinn á; hann skildi okkur að og við fjarlægðumst hvort annað og að lokum rann sambandið út í sandinn. Kannski var þessi lífsstíll aldrei alveg fyrir hana. Hann er ekki sá besir.“

Ást og sambönd var eitthvað sem hann hafði velt fyrir sér fyrir ferðalagið mikla. „Í fyrstu dagbókunum mínum, þegar ég sat heima áður en ég lagði af stað, skrifaði ég um þetta. Þar er fjallað um að ég muni verða ástfanginn, að ég muni brenna mig og að ég þurfi að skilja hvað það þýðir. Ég hafði því gert ráð fyrir þessu öllu saman, en það gerir hlutina ekkert auðveldari þegar þeir raunverulega gerast.“