Pressan

Reynir að tryggja sér Nóbelsverðlaunin á síðustu stundu - „Ég er ekki að monta mig“ 

Mynd
Donald Trump Bandaríkjaforseti. Mynd/Getty

Donald Trump Bandaríkjaforseta dreymir um friðarverðlaun Nóbels. Hann varð fyrir sárum vonbrigðum þegar hann hlaut ekki verðlaunin í fyrra, en virðist vona að draumurinn rætist á föstudaginn þegar sigurvegarinn verður tilkynntur.

Trump ræddi við fjölmiðlamenn á blaðamannafundi um Trump-bankareikningana sem hann ætlar að úthluta hverju barni í Bandaríkjunum.

„Ég hef gert hluti sem enginn annar hefur gert. Ég er ekki að monta mig, ég er bara að segja ykkur staðreyndir,“ sagði forsetinn og bætti við: „Enginn forseti hefur bundið endi á stríð. Ég hef bundið endi á 8 stríð.“

Litlar líkur þykja á því að Trump hljóti verðlaunin, einkum vegna stríðsátaka Bandaríkjanna og Írans sem og ítrekaðra hótana forsetans um að innlima aðrar þjóðir.

Forsætisráðherra Kanada, Mark Carney, er sagður í mun sterkari stöðu en Trump. Veðbankar telja góðar líkur á að Carney hljóti friðarverðlaunin eftirsóttu, en verði það raunin er talið að það muni ekki hjálpa samskiptum nágrannaríkjanna sem nú þegar eru stirð. 

Independent greinir frá.