Christa Pike, dauðadæmdur fangi í Tennessee-fylki sem mistókst að taka af lífi í síðustu viku, er komin til meðvitundar en ljóst er að misheppnaða aftakan hefur haft alvarlegar afleiðingar.
„Hún er reið og ráðvillt út af þessu öllu,“ segir lögmaður hennar, Randy Spivey, í samtali við USA Today, en Christa var flutt þungt haldin á sjúkrahús í lok september eftir að hún lifði af tvær sprautur af eitrinu pentíbarítal í aftöku sinni. Um tíma var talið að Christa kæmist aldrei aftur til meðvitundar og höfðu lögmenn hennar greint frá því að hún væri talin heiladauð og að til umræðu væri að slökkva á öndunarvél hennar. Öllum að óvörum vaknaði Christa svo á þriðjudaginn.
Eftir að hún vaknaði var greint frá því að hún væri fær um að tjá sig en Spivey hefur nú lýst því að Christa sé langt frá því að vera heil heilsu. Hún er með blóðtappa í hendi, lungnabólgu og gífurlega bólgna hand- og fótleggi. Hún getur ekki hreyft á sér hendurnar og óljóst er hvort það sé varanlegt eða ekki en eitrinu var sprautað í hendur hennar. Hún getur ekki kyngt og hefur því ekki getað borðað. Geta hennar til að tjá sig er takmörkuð og hafa lögmenn hennar ekki náð að fá samþykki hennar fyrir málshöfðun vegna misheppnuðu aftökunnar og til að koma í veg fyrir að yfirvöld reyni aftur að taka hana af lífi.
Lögmenn telja að æðaleggjum, sem eitrinu var sprautað í gegn, hafi ekki verið komið fyrir með réttum hætti í aftökunni. Það eða að æðar Christu hafi gefið sig sem hafi orðið til þess að eitrið fór inn í handleggi hennar frekar en í blóðrásina. Yfirvöld hafa ekki gefið formlegar skýringar á því hvað fór úrskeiðis en málið er til rannsóknar.
Spivey og aðrir í lögfræðiteymi Christu hafa krafist þess að ríkisstjóri Tennessee mildi refsingu Christu svo hún verði ekki tekin af lífi heldur gert að sæta lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn. Ríkisstjórinn, Bill Lee, hefur ekki svarað erindinu.