Myndbönd frá Frakklandi sem sýna foreldra mæta á vettvang mótmæla og draga börn sín heim hafa vakið töluverða athygli á samfélagsmiðlum.
Mikil mótmæli hafa staðið yfir í Frakklandi undanfarnar vikur vegna óánægju nemenda með aðstæður í skólum, meðal annars kennaraskort, yfirfullar kennslustofur og lélegt skólahúsnæði. Mótmælin hafa víða þróast yfir í hörð átök við lögreglu.
Daily Mail birti meðfylgjandi myndband á vef sínum en á því má meðal annars sjá móður stökkva út úr bíl sínum og hlaupa að syni sínum þar sem mótmæli standa yfir. Hún grípur í drenginn, slær hann nokkrum sinnum í bakið og kemur honum rakleiðis inn í bílinn.
Þá má sjá móður sækja dóttur sína í hóp mótmælenda við skóla. Dóttirin streitist fyrst á móti en lætur að lokum undan og fylgir móður sinni á brott.
Þá hefur myndband af föður einnig vakið athygli. Hann sést leiða son sinn á brott úr hópnum með því að halda í hnakkadramb hans.
Mótmælin í Frakklandi náðu nýjum hæðum á í gær þegar yfir 250 þúsund manns tóku þátt víða um land samkvæmt frönskum yfirvöldum. Nemendur nutu þar stuðnings kennara, foreldra og verkalýðsfélaga.
Átök brutust út á nokkrum stöðum og 488 voru handteknir. Mikil umræða hefur jafnframt skapast um framgöngu lögreglu eftir að nokkrir unglingar slösuðust alvarlega.
Meðal annars missti 15 ára drengur hönd eftir að reyksprengja sem lögregla beitti sprakk. Frönsk stjórnvöld hafa nú tímabundið stöðvað notkun slíkra sprengja gegn mótmælendum á meðan atvikið er rannsakað.