Pressan

Varð svo brátt í brók að hann ók inn í verslun til að komast á klósettið

Mynd
Ökumanninum lá mikið á að komast á klósettið.

Ökumanni einum í Rosenber í Texas í Bandaríkjunum varð nýlega svo brátt í brók að hann tók það til ráðs að aka bíl sínum inn í verslun.

Lögreglan segir að maðurinn hafi orðið mjög æstur þegar hann kom að læstum dyrum og hafi þá ekið inn í verslunina því hann hafi ekki getað beðið lengur með að komast á klósettið.

Miklar skemmdir urðu á anddyri verslunarinnar.

„Rannsókn leiddi í ljós að ökumaðurinn þurfti að komast á klósettið og var æstur yfir að dyrnar voru læstar. Þegar manni er mál, þá verður maður að sinna því en við mælum með að fólk finni opna verslun til að sinna kalli náttúrunnar,“ skrifaði staðarlögreglan á Facebook.

Mynd
Hann komst nú nokkuð langt inn í verslunina.