Tveggja ára barn fékk nýlega dánaraðstoð í Hollandi og varð þar með yngsta barnið til að fá dánaraðstoð í landinu.
Barnið þjáðist af flogaveiki og ólæknanlegum heilaskaða sem það varð fyri í fæðingu. Barnið fæddist eftir 26 vikna meðgöngu og hafði lifað með flogaveiki og heilaskaða frá fæðingu. Mat lækna var að engar líkur væru á nokkrum framförum eða bata.
Barnið var einnig með skerta sjón og heilalömun.
News skýrir frá þessu og segir að þetta komi fram í opinberum gögnum frá nefndinni sem tekur fyrir umsóknir um dánaraðstoð.
Það var nýleg breyting á löggjöfinni um dánaraðstoð sem gerði að verkum að barnið gat fengið slíka aðstoð. Áður en breytingin var gerð gátu börn yngri en eins árs fengið slíka aðstoð og fólk tólf ára og eldra.