Pressan

Skilnaðarsérfræðingur segir að karlar séu að „vígvæða það að kúka“ í samböndum sínum

Mynd
Eru karlar búnir að vígvæða klósettferðirnar?

Skilnaðarsérfræðingurinn Olivia Howell telur að karlmenn séu í vaxandi mæli farnir að „vígvæða það að kúka“ í ástarsamböndum sínum.

Howell, sem er rithöfundur og hlaðvarpsstjórnandi, birti grein á Substack þar sem hún segir að karlar sitji langdvölum á klósettinu til að þurfa ekki að eyða tíma með fjölskyldu sinni og komast hjá því að bera ábyrgð.

„Eiginmaðurinn gengur inn á klósett sem virkur meðlimur fjölskyldunnar, lokar á eftir sér og er um leið orðinn algjörlega einn,“ skrifaði hún.

Hún segir síðan að það sé hægt að fresta áhugamálum og það megi trufla margt annað en það sé ekki hægt að semja um klósettferðirnar.

„Klósettið er öðruvísi því þú getur ekki með góðum rökum bannað fólki að fara á klósettið. „Ég þarf að fara á klósettið“ er ein öflugasta setningin sem fólk, sem býr með öðru fólki“ getur notað,“ sagði hún einnig.

Howell, sem skrifaði bókina „Divorce Happens“, bætti síðan við að snjallsímar hafi gert langar klósettferðir mögulegar því þar geti karlar setið og skoðað Internetið.

„Hann gæti verið að lesa Reddit, skoða hlutabréfavísitölur, horfa á 45 mínútna YouTube myndband um rafgítara, spila tölvuleik, horft á klám, svara tölvupóstum eða kannski, bara kannski, er hann að glíma við magaverki,“ skrifaði hún.