Lögreglan í Tampa í Flórída í Bandaríkjunum segir að ekki verði frekar aðhafst í máli manns á þrítugsaldri sem skaut 15 ára pilt til bana.
Lögreglan segir að pilturinn, Heitor Amaral, hafi farið inn á pallinn við hús mannsins við annan mann og hafi þeir barið á glerhurð. Hafi þeir sagst vera að leita að síma Heitor.
Til átaka kom á milli piltanna og húsráðanda sem segist hafa verið tekinn hálstaki og hafi óttast um líf sitt og hafi tekið upp byssu og hleypt einu skoti af. Það hæfði Heitor og varð honum að bana.
Ríkissaksóknarinn í Flórída segir að ákvörðunin um að maðurinn verði ekki ákærður hafi verið tekin að vel íhuguðu máli eftir ítarlega yfirferð yfir gögn málsins. Hann sagði að ákæruvaldið geti ekki unnið málið þar sem það geti ekki haldið því fram að ekki hafi verið um sjálfsvörn að ræða.