Pressan

Rúgbrauð hefur slegið í gegn í New York – Selt á 7300 krónur

Mynd
Þetta er ekki umrætt rúgbrauð en þó eflaust gott. Mynd úr safni.

Rúgbrauð er nú ekki eitthvað sem við Íslendingar hugsum eitthvað sérstaklega út í eða æsum okkur yfir. Það er yfirleitt til í búðinni og á mörgum heimilum svo það er ekkert sérstakt vandamál að fá sér eins og eina sneið ef þörf krefur.

En rúgbrauð er ekki mjög þekkt í Bandaríkjunum en nú hefur það slegið í gegn í New York þar sem bakaríið Rye, sem er á Manhattan, hefur slegið í gegn með rúgbrauðinu sínu sem rokselst þrátt fyrir að það kost 60 dollara (7300 krónur).

People skýrir frá þessu og segir að Rye sé fyrsta útibú austurríska bakarísins Martin Auer í Bandaríkjunum. Það opnaði í byrjun september og hefur ekki haft undan síðan að baka rúgbrauðið sem selst yfirleitt upp.

Tim Auer, einn eigandi bakarísins, sagði að verðið á því megi rekja til stærðar þess, það vegur 1,3 kíló, og hinnar miklu vinnu sem fer í framleiðslu þess en þetta er súrdeigsbrauð.

Hann sagði að frá því að bakaríið opnaði hafi vörur þess selst upp nær alla daga.