John Lough, fyrrum yfirmaður hjá NATÓ og nú yfirmaður utanríkismáladeildar hjá The New Eurasian Strategies Centre (NEST) segir að Vladímír Pútín telji sig vera að vinna stríðið og óttast hann að Pútín hafi rétt fyrir sér.
The Independent skýrir frá þessu og hefur eftir honum að hann óttist að leiðtogar Bretlands hafi ekki hugann við afstöðu Rússlands til stríðsins og hvaða afleiðingar sigur Rússa myndi hafa fyrir Bretland.
Hann sagði að þrátt fyrir að Úkraínumönnum hafi tekist að halda stöðu sinni í Donbas og hafi gert fjölda langdrægra árása á Rússland í sumar, þá hafi Rússar enn yfirhöndina.
„Ég held að margir á Vesturlöndum hafi verið byrjaðir að halda að taflið væri að snúast við, sérstaklega þegar Úkraínumenn orsökuðu eldsneytisskort um allt Rússland,“ sagði hann og bætti við: „En þetta er blekking því Rússar hafa yfirhöndina í lofti og eru svo sannarlega að láta Úkraínumenn gjalda fyrir það sem þeir gerðu í sumar.
Hann sagði að þrátt fyrir að Úkraínumenn séu „ákveðnir“ þá sé verið að grafa jörðina undan þeim.
Hann sagðist telja að breskir stjórnmálamenn vonist til að komast í gegnum valdatíma Donald Trump og þá taki einhver annar við með betri tíð, það sé auðvitað ekki útilokað en það að vonast eftir því að hlutir gerist sé ekki mjög góð stefna.