Pressan

Pútín dælir milljörðum í stríðið sitt og sendir almenningi reikninginn

Mynd

Eftir margra ára stríð í Úkraínu er stríðsefnahagur Pútíns undir þrýstingi og hár lánskostnaður þvingar ríkisstjórnina til að skattahækkana. Stríðsrekstur er dýr og nú vilja Pútín og hans fólk setja enn meira fé í hann.

The New York Times og Reuters skýra frá þessu og byggja á  gögnum frá rússnesku ríkisstjórninni. Í þeim kemur fram að fyrirhugað sé að eyða sem svarar til um 26.000 milljörðum íslenskra króna í herinn á næsta ári. Þetta er 27% hækkun frá upprunalegri áætlun og hæsta upphæðin frá því að stríðið hófst.

Reuters hefur einnig séð fleiri gögn frá ríkisstjórninni sem sýna að hallinn á fjárlögunum muni aukast sem og skuldir ríkisins. Er ætlað að þær muni nema 21,7% af landsframleiðslunni 2027 en eru 19,9% núna. Þar með mun skuldahlutfallið fara yfir 20% af landsframleiðslu en rússnesk yfirvöld hafa talið 20% vera hámarksskuldahlutfall.

Til að mæta þessum auknu útgjöldum er ætlunin að hækka skatta, skera útgjöld til velferðarmála niður sem og til menntunar og heilbrigðismála.