Þú hefur eflaust heyrt ráðið um að maður eigi að ganga að minnsta kosti 10.000 skref á dag til að halda heilsunni í lagi. Ástralskir vísindamenn tóku sér það verkefni á hendur að rannsaka hvort þetta eigi við rök að styðjast.
Niðurstaða þeirra er að mun færri skref geti haft sömu jákvæðu áhrifin á heilsuna. Það krefst bara eins ákveðins atriðis.
Vísindamennirnir notuðust við gögn frá tæplega 65.000 miðaldra breskum karlmönnum í rannsókninni.
Í rannsókninni báru vísindamennirnir saman fjölda skrefa og hversu hratt þátttakendurnir gengu, við hvenær mennirnir létust.
Emmanuel Stamatakis, aðalhöfundur rannsóknarinnar, segir í fréttatilkynningu að niðurstaðan hafi verið að líkurnar á ótímabærum dauða hafi verið miklu minni hjá þeim sem gengu hratt en tóku færri en 5.000 skref daglega. Samsvarandi minnkaði hættan á ótímabærum dauða hjá þeim, sem gengu 5.000 til 7.500 skref daglega, en hægar.“
Með öðrum orðum þá er niðurstaða rannsóknarinnar, sem hefur verið birt í vísindaritinu British Journal of Sports Medicine, að ef þú gengur færri en 10.000 skref á dag, en rösklega, þá dregur það úr líkunum á ótímabærum dauða um allt 43%.
Ef þú vinnur kyrrsetuvinnu þá er betra að þú gangir hratt og styttri vegalengd en að ganga rólega og fleiri skref segja vísindamennirnir.
„Mikilvægi boðskapurinn er að hvert skref telur. Það getur líka skipt máli hvernig þú tekur þessi skref. Manneskja, sem gengur 4.000 skref á dag og það rösklega, getir eitthvað sem skiptir máli. Manneskja, sem getur ekki gengið rösklega, getur samt fengið ávinning af því að ganga fleiri skref,“ sagði Nicholas Koemel, einn meðhöfunda rannsóknarinnar.
Röskleg ganga er ekki skilgreind því hún er misjöfn frá einni manneskju til annarrar. Þumalfingurreglan, fyrir hvað er röskleg ganga, er að sögn vísindamannanna að þú fylgist með andardrættinum á meðan á göngunni stendur. Þegar þú gengur rösklega finnur þú að andardrátturinn verður hraðari og þér finnst þér vera heitt en getur enn haldið uppi samræðum með stuttum setningum. Þú átt þó ekki að geta sungið á meðan þú gengur að sögn vísindamannanna.