Pressan

Nili-aðgerðin – Ísraelsmenn eru að vinna sig í gegnum dauðalista með 5.000 nöfnum

Mynd

Ísraelska ríkið stendur fyrir aðgerð sem beinist gegn þeim Palestínumönnum sem tóku þátt í árásinni á Ísrael 7. október 2023. Aðgerðin, sem nefnist Nili, gengur út á að hafa uppi á öllum þátttakendunum í árásinni og drepa þá.

Ísraelskir leiðtogar hafa ítrekað sagt að kennsl verði borin á alla þátttakendurna í árásinni, staðsetning þeirra verði afhjúpuð og þeir drepnir.

Nýlega kom fram að vinna við þetta hafi hafist fljótlega eftir árásina 2023 og að um mjög skipulagða aðgerð sé að ræða.

Unnið er út frá lista með nöfnum um 5.000 manns og eru þeir drepnir einn af öðrum.

Channel 12 sjónvarpsstöðin sagði í byrjun ágúst að búið væri að drepa um 2.800 þeirra. 1.200 þeirra voru drepnir í árásinni og næstu daga. Hinir eru drepnir eftir því sem þeir finnast.