Pressan

Myrkraverk í Hollandi: 58 ára kona greiddi fyrir launmorð með bitcoin – Áætlunin fór á annan veg

Mynd
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd/Pexels

58 ára kona frá Enschede í Hollandi er grunuð um að hafa pantað morð á tveggja barna móður á myrkravefnum (e. dark web) og greitt fyrir það með rafmyntinni bitcoin.

Konan sem átti að vera skotmarkið var í sumarfríi á tjaldsvæði í Hollandi þegar pöntunin var gerð og hafði enga hugmynd um að einhver hefði óskað eftir því að hún yrði drepin.

„Látið þetta líta út eins og slys. Hún er í fríi til loka júlí,“ hljóðuðu fyrirmælin sem send voru 22. júlí 2021.

Með pöntuninni fylgdi ljósmynd af konunni, nákvæm staðsetning tjaldsvæðisins þar sem hún dvaldi og greiðsla upp á tæplega 1.200 Bandaríkjadali í bitcoin.

Samkvæmt hollenskum fjölmiðlum var konan sem átti að vera skotmarkið fyrrverandi sambýliskona núverandi kærustu hinnar grunuðu. Talið er að rekja megi atvikið til deilna eða afbrýðisemi sem tengdust sambandi þeirra.

Konan var handtekin í septembermánuði vegna málsins og var gæsluvarðhald hennar framlengt um 90 daga í gær.

Launmorðingjarnir voru svindlarar

Það sem konan frá Enschede vissi ekki var að vefsíðan sem hún hafði leitað til á myrkravefnum var svikasíða.

Engir alvöru launmorðingjar stóðu á bak við síðuna heldur netglæpamenn sem höfðu það eitt að markmiði að hafa fé af fólki sem vildi láta ráða aðra af dögum. Það kom því aldrei til þess að morðið væri framið.

Málið komst síðar upp fyrir tilstilli hollenska fjölmiðilsins RTL Nieuws. Miðillinn komst á síðasta ári yfir gögn úr gagnagrunni vefsíðunnar fyrir tilstilli breska tölvuþrjótsins Chris Monteiro.

Gögnin bentu til þess að að minnsta kosti sjö morðpantanir á Hollendingum hefðu verið gerðar í gegnum síðuna. Skotmörkin voru af ýmsum toga, allt frá starfsmanni sveitarfélags til atvinnurekanda.

RTL afhenti lögreglu gögnin

RTL Nieuws segir að undir venjulegum kringumstæðum afhendi miðillinn lögreglu ekki gögn sem aflað er við rannsóknarvinnu. Í þessu tilviki hafi hins vegar verið óljóst hvort fólkið sem morðpantanirnar beindust að væri enn í hættu.

Því hafi verið ákveðið að gera undantekningu og afhenda lögreglu gögnin.

Lögreglan í austurhluta Hollands handtók konuna í Enschede og við húsleit lagði lögregla meðal annars hald á síma og fartölvur.

Málið er ekki það eina sem hefur komið upp úr gögnunum. Áður hafði 45 ára heimilislaus kona verið handtekin, grunuð um að hafa viljað láta drepa athafnamann í Rotterdam.

Rannsóknir á gögnum vefsíðunnar hafa leitt til þess að um 50 einstaklingar víða um heim hafa verið handteknir vegna meintra morðpantana. Samkvæmt umfjölluninni hafa þeir samanlagt hlotið meira en 275 ára fangelsisdóma.

Tveir Rúmenar sem sagðir eru hafa stjórnað svikasíðunni eru nú í haldi. Þrátt fyrir það er síðan enn sögð vera starfandi.