Misheppnuð aftaka hinnar bandarísku Christu Pike í Tennessee í síðustu viku hefur nú orðið til þess að öðrum dauðadæmdum fanga hefur verið veittur óvæntur gálgafrestur.
Gary Wayne Sutton átti að verða tekinn af lífi 3. desember en aftöku hans hefur verið frestað.
Bill Lee, ríkisstjóri Tennessee, ákvað í kjölfar máls Pike að stöðva allar aftökur í ríkinu út árið. Aftaka Suttons var sú eina sem eftir var á dagskrá á þessu ári.
Lést ekki þrátt fyrir tvo skammta
Mál Pike hefur vakið gríðarlega athygli. Tilraun var gerð til að taka hana af lífi með banvænni lyfjagjöf en þrátt fyrir að henni væru gefnir tveir skammtar af lyfjum lést hún ekki.
Pike missti meðvitund og var flutt á sjúkrahús þar sem hún hefur fengið lífsnauðsynlega læknisaðstoð. Atvikið varð til þess að yfirvöld í Tennessee ákváðu að staldra við og fresta frekari aftökum að minnsta kosti út árið.
Sutton fær því að lifa lengur en ráðgert hafði verið og hefur engin ný dagsetning verið ákveðin fyrir aftöku hans.
Borguðu trygginguna og drápu hann
Sutton hefur setið á dauðadeild í meira en þrjá áratugi vegna morðanna á systkinunum Tommy Griffin og Connie Branam árið 1992.
Samkvæmt gögnum málsins fóru Sutton, frændi hans James Dellinger og Griffin út að skemmta sér að kvöldi 21. febrúar það ár. Þar sátu þeir að sumbli en síðar um kvöldið brutust út slagsmál.
Griffin var skilinn eftir ber að ofan og skrámugur við vegkant þar sem lögregla fann hann. Hann var handtekinn vegna ölvunar á almannafæri.
Sutton og Dellinger leystu Griffin síðan úr haldi gegn tryggingu. Aðeins um hálftíma síðar heyrðu vitni byssuskot á svæðinu þar sem Griffin fannst síðar látinn. Hann hafði verið skotinn í höfuðið með haglabyssu.
Daginn eftir fór Connie Branam að leita að bróður sínum ásamt Sutton og Dellinger. Þau fóru meðal annars á barinn þar sem mennirnir höfðu verið kvöldið áður. Skömmu síðar fannst lík Branam illa brunnið í bíl sem kveikt hafði verið í.
Bæði Sutton og Dellinger voru dæmdir til dauða vegna morðanna. Dellinger lést hins vegar af náttúrulegum orsökum á dauðadeild áður en til aftöku hans kom.
Sutton hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu.