Pressan

Lyklalaus bíll getur horfið á tæpri mínútu - Svona lokar þú á merkjasendingar bíllykilsins

Mynd
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd:Lögreglan

Það þarf bara tvö lítil loftnet, sem er haldið á, og tvo aðila til að nema merkjasendingar á milli bíllykils og bílsins. Þetta tekur aðeins nokkrar sekúndur og síðan  er hægt að nota upplýsingarnar til að stela bílnum.

Flestir nýir bílar eru þannig úr garði gerði að ekki þarf að stinga lykli í kveikilásinn til að gangsetja þá. Lykillinn sendir frá sér merki sem bíllinn nemur og þegar lykillinn er kominn í innan við ákveðinn radíus frá bílnum, þá er hægt að gangsetja bílinn.

Þessu fylgir þó sú hætta að óprúttnir aðilar nemi þessar merkjasendingar og steli bílnum. Lykillinn sendir merki til bílsins ef hann er ekki of langt frá honum og það er hægt að nema þessar sendingar, til dæmis ef bíllinn er í innkeyrslunni og lykillinn á eldhúsborðinu.

Félag danskra bifreiðareigenda, FDM, hefur vakið athygli fólks á þessu og bent á hvað það geti gert til að koma í veg fyrir þetta, hvernig sé hægt að loka á merkjasendingarnar á milli lykilsins og bílsins.

Segja samtökin að ef tveir eru að verki þá geti annar staðsett sig eins nálægt húsveggnum og hægt er til að fanga hið veika útvarpsmerki sem lykillinn sendir stöðugt frá sér. Hann notar loftnet til að styrkja merkið og sendir það áfram til annars loftnets, sem annar aðili er með við bílinn. Bíllinn heldur þá að lykillinn sé mjög nálægt og tekur úr lás og virkjar gangsetningarbúnaðinn. Þá er lítið mál að setjast inn í bílinn og aka af stað.

Það krefst ekki mikils að loka á þennan möguleika. Það er til dæmis hægt að vefja lykilinn inn í álpappír eða setja hann í málmílát til að loka fyrir merkjasendingarnar.

Það er hægt að kaupa litla poka, sem passa vel í vasa, hjá mörgum vefverslunum og bílavöruverslunum. Þeir nefnast Faraday-etui og eru fóðraðir með litlum málmþræði. Hann er einfaldur í notkun en þarf að vera alveg hreinn og heill til að virka. Gat í fóðrinu gerir að verkum að merkjasendingarnar sleppa í gegn.

Svo er hægt að geyma lykilinn eins langt frá útidyrunum og hægt er. Það á aldrei að geyma hann í forstofunni eða nærri bílastæðinu/bílskúrnum. FDM mælir með að hann sé geymdur eins langt inni í húsinu og hægt er, helst í því miðju.

Sumir bílar eru með möguleika á að slökkva á lyklalausa möguleikanum á nóttinni. Þetta er eitthvað sem ætti að nota ef hægt er.