Ef maður heldur að meðlimir bresku konungsfjölskyldunnar sinni engum húsverkum og öðrum hversdagslegum hlutum, þá er rétt að hugsa málið á nýjan leik.
Að minnsta kosti miðað við það sem Katrín krónprinsessa segir.
The Times segir að hún hafi nýlega veitt smá innsýn í lífið bak við tjöldin.
„Ég elska að vaska upp. Það geri ég svo sannarlega,“ sagði hún þegar hún heimsótti góðgerðasamtökin West Sussex Minibus nýlega.
Og ekki nóg með að henni finnist gaman að vaska upp því eiginmaður hennar, Vilhjálmur krónprins, hjálpar til. „Hann þurrkar. Við erum gott par og við fáum börnin líka til að hjálpa okkur,“ sagði hún.