Utanríkisráðherra Indlands, S Jaishankar, segir að heimurinn standi frammi fyrir „miklum matarskorti“ á næstu mánuðu vegna stríðsins í Úkraínu og Miðausturlöndum og vegna áhrifa Ofur-El Nino.
Hann lét þessi ummæli falla á ráðstefnu á vegum Asia Society í New York. Hann sagði að stríðin í Úkraínu og Miðausturlöndum hafi „skelfileg áhrif“ á efnahag ríkjanna á suðurhveli jarðar og þetta hefði mikil áhrif á framboð á orku, mat, áburði og á fjármálakerfið.
Hvað varðar orkumálin sagði hann að staðan á mörkuðunum hafi versnað því sum ríki hafi „spilað pólitískt“ með olíubirgðir og keyrt verðið upp þegar það hefði átt að vera að komast í jafnvægi.
Þá hafa árásir Úkraínumanna á rússneskar olíuhreinsistöðvar og útflutningsbann Rússa á dísilolíu valdið miklum hækkunum á dísilolíu.
Hvað varðar matvæli þá sagði Jaishankar að sum af stærstu kornútflutningsríkjum heims geti ekki komið sendingum úr landi, sérstaklega frá Svartahafi því þar hefur innrás Rússa í Úkraínu hvað eftir annað valdið truflunum á útflutningi frá einu stærsta framleiðslusvæði heims á hveiti og korni.
Áburðarskortur fer vaxandi því lykilframleiðendur eru staðsettir í Miðausturlöndum og Rússlandi og gengur þeim illa að halda framleiðslunni gangandi.
Við þetta bætist síðan Ofur-El Nino og blandan af öllu þessi sé ávísun á mikinn matarskort á næstu mánuðum.