Pressan

Hugmyndaríkir fangar – Komu sér upp sundlaug og fleiru í fangelsinu

Mynd
Það fór greinilega vel um fangana.

Fimm embættismenn hafa verið reknir úr starfi eftir að Umboðsmaður indónesíska þingsins fór í eftirlitsferð í Cibinong-fangelsið. Þar fann hann tvöföld rúm, sjónvörp og fleira. Var þessi aðstaða ætluð „VIP“ föngum sem greiddu mánaðargjald fyrir afnot af þessum lúxus.

The Independent skýrir frá þessu og segir að Umboðsmaðurinn hafi farið í óvænta vettvangsskoðun í fangelsinu og hafi það sem hann fann komið honum gríðarlega á óvart.

Fangelsið er rétt fyrir utan Jakarta og þar eru menn, sem hafa framið alvarleg afbrot og hvítaflibbaglæpamenn, vistaðir.

Umboðsmaðurinn og starfsfólk hans höfðu boðið blaðamönnum með sér í vettvangsskoðunina. Þegar hópurinn kom að fangelsinu tók hann eftir svæði sem var afgirt með trégirðingu og spurðist fyrir um það. Fangaverðir reyndu að hindra ferðir teymisins en tókst það ekki.

Mynd
Tvíbreið rúm og ýmislegt annað kom Umboðsmanninum mjög á óvart.

Þegar komið var inn á girta svæðið, sem er bak við íbúð fangelsisstjórans, fann teymið að minnsta kosti tíu íbúðir með loftkælingu, sófum, ísskápum, borðstofum og ýmsum heimilistækjum. Einnig fundust dýrir bílar, sundlaug, líkamsrækt og verið var að koma upp golfhermi.

Síðan fannst leyniinngangur sem fólk gat farið um í gegnum bambusskóg sem lá upp að honum.

Ákveðnir fangar virðast hafa haft aðgang að þessum lúxus og greiddu þeir sérstaklega fyrir það.

Fimm háttsettir embættismenn, þar á meðal fangelsisstjórinn, voru reknir úr starfi nokkrum dögum eftir heimsókn Umboðsmannsins.