Það er ekki auðvelt starf sem starfsfólk á líknardeildum sinnir. Það sinnir fólki sem er á lokametrum lífsins og glímir við erfið veikindi og þarf reglulega að horfa á eftir sjúklingunum yfir móðuna miklu.
Það er líka erfitt að tala um dauðann því hann virðist enn vera mikið tabú þrátt fyrir að ekkert okkar sleppi undan honum.
Neal K. Shah, sem starfar sem hjúkrunarfræðingur á líknardeild, tjáir sig á samfélagsmiðlum um eitt og annað tengt starfinu. Hann hefur til dæmis rætt um umönnun fólks með elliglöp, krabbamein og aðra illvíga sjúkdóma og deilt af margra ára reynslu sinni við umönnun dauðvona sjúklinga.
Hann segir að það gerist oft að sjúklingar segi ákveðið orð á síðustu 24 klukkustundum lífsins.
„Það er eitt orð sem hjúkrunarfræðingar á líknardeildum heyra aftur og aftur á síðustu 24 klukkustundum sjúklingsins. Um leið og þú veist hvaða orð þetta er, þá gleymirðu því ekki. Orðið er „mamma“,“ sagði hann í spjalli á YouTube.
Læknirinn Christopher Kerr, rannsakaði rúmlega 1.000 sjúklinga á líknardeild í Buffalo. Sú manneskja, sem þessir sjúklingar kölluð mest á og sáu oftast á síðustu stundum lífsins og teygðu sig mest í áttina til, var móðir þeirra.
„Ég er að tala um sjúklinga á tíræðisaldri. Meira að segja sjúklinga sem misstu móður sína fyrir rúmlega 50 árum,“ sagði hann.
Hvað varðar hugsanlega skýringu á þessu sagði hann: „Ég held að það sé þetta sem gerist þegar líkaminn er að slökkva á sér. Elsti og frumstæðasti hluti heilans starfar oft lengst. Tengingin við móður, fyrsta andlitið sum þú elskaðir, fyrsta röddin sem róaði þig, er grafin í þessu djúpa lagi. Þannig að deyjandi heilinn leitar aftur í fyrsta örugga staðinn sem hann komst í kynni við.“