Pressan

Gervigreind endurskapar það sem fólk sér - Vísindamenn horfa næst til draumanna

Mynd
Upprunalega myndin af hafnaboltaleiknum er til vinstri en til hægri má sjá endurgerð Brain-IT-gervigreindarinnar, byggða á heilavirkni einstaklings sem horfði á upprunalegu myndina.

Vísindamenn hafa þróað nýtt gervigreindarkerfi sem getur endurgert myndir sem fólk horfir á með því að greina heilavirkni þess. Niðurstöðurnar þykja marka mikilvægt skref í þróun tækni sem tengir saman gervigreind og starfsemi heilans.

Kerfið nefnist Brain-IT og var þróað af vísindamönnum við Weizmann-vísindastofnunina. Þátttakendur í rannsókninni voru látnir horfa á ýmsar ljósmyndir á meðan heilavirkni þeirra var mæld með svokallaðri starfrænni segulómun, fMR.

Meðal myndanna voru hafnaboltaleikur, hundur sem teygði höfuðið út um bílglugga og hópur fólks á göngu yfir snævi þakið landslag.

Gervigreindin fékk síðan það verkefni að endurgera myndirnar út frá fMRI-mælingum á heilavirkni þátttakendanna. Kerfið hafði ekki séð myndirnar áður en tókst engu að síður að endurskapa innihald þeirra með töluverðri nákvæmni.

Michal Irani, prófessor við Weizmann-vísindastofnunina, segir að þegar séu til gervigreindarlíkön sem geti umbreytt upplýsingum um heilavirkni í myndir. Þau eigi þó gjarnan í erfiðleikum með grundvallaratriði á borð við liti og uppbyggingu myndanna.

„Nýja líkanið sem við þróuðum stendur þeim framar bæði þegar kemur að því að endurgera innihald myndarinnar og smáatriði hennar,“ segir Irani.

Einn helsti styrkur Brain-IT er hversu lítið af gögnum þarf frá hverjum einstaklingi. Sambærileg kerfi hafa þurft um 40 klukkustundir af mælingum til að læra að túlka heilavirkni nýs einstaklings en Brain-IT þarf samkvæmt vísindamönnunum aðeins um eina klukkustund.

Kerfið var þjálfað á þúsundum fMRI-mælinga sem teknar voru af átta sjálfboðaliðum á meðan þeir horfðu á mismunandi myndir. Þannig lærði gervigreindin að tengja ákveðin mynstur í heilavirkni við sjónræna eiginleika myndanna, svo sem liti, form og hluti.

Næsta skref er að kanna hvort hægt sé að nota tæknina til að afkóða hljóð og jafnvel hreyfimyndir úr heilavirkni. Irani segir drauma sérstaklega spennandi en jafnframt krefjandi viðfangsefni.

„Ef okkur tekst að yfirstíga allar þessar hindranir er hugsanlegt að við getum jafnvel lesið drauma í framtíðinni,“ segir hún.

Tæknin getur þó ekki lesið hugsanir fólks í hefðbundnum skilningi. Í rannsókninni endurgerði kerfið myndir sem þátttakendur horfðu á á meðan heilavirkni þeirra var mæld.

Mynd