Pressan

American Idol-morðinginn hágrét þegar ungar dætur hans sögðu honum til syndanna - „Ætla ekki að heimsækja þig“

Mynd

Caleb Flynn, sem vakti athygli fyrir rúmum áratug sem keppandi í raunveruleikaþáttunum American Idol, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á eiginkonu sinni, Ashley Fynn. Hann hágrét þegar hann enn og aftur hélt fram sakleysi sínu og svo þegar yfirlýsingar dætra hans voru lesnar upp í dómsal. 

Söngvarinn neitaði sök og hélt því fram að innbrotsþjófur hefði skotið Ashley til bana þar sem hún lá sofandi í rúmi sínu. Kviðdómur féllst ekki á þessa skýringu og sakfelldi Caleb í síðustu viku fyrir morð af ásettu ráði. Það er svo í bandarískum sakamálum að kviðdómur sakfellir en dómari ákvarðar refsingu í sérstöku þinghaldi þar sem þeir aðilar sem glæpurinn hefur haft áhrif á fá að gefa skýrslu eða senda inn yfirlýsingar sem dómari getur svo haft til hliðsjónar við ákvörðun sína. Eins fá dæmdir menn tækifæri til að biðjast vægðar eða biðja þolendur og eftir atvikum fjölskyldur þeirra afsökunar.

Hvað gerði hún þér?

Refsing Caleb var ákvörðuð í dag og voru þar lesnar upp yfirlýsingar frá ungum dætrum hans, Avu, sem er 10 ára, og Alissu, sem er 12 ára.

„Mamma var hin fullkomna manneskja,“ sagði yngri stúlkan í yfirlýsingu sem frændi hennar las upp fyrir hana. „Hvað gerði hún þér nokkurn tímann til að fá þig til að hata hana svo? Hún var besti vinur minn og þú kaust að drepa einu móðurina sem ég hef nokkurn tímann átt.“

Talið er að Caleb hafi myrt Ashley svo hann gæti tekið saman við hjákonu sína, Aleighu Botner, sem hann kynntist í gegnum kirkjuna þar sem hann starfaði við guðþjónustu. Ava spurði hvernig faðir hennar hefði fengið það af sér að vera eiginkonu sinni ótrúr.

„Hvernig gastu verið henni ótrúr og farið til þessarar hryllilegu konu, Aleighu? Ég hef aldrei kunnað vel við hana,“ sagði Ava og bætti við: „Þú og Aleigha hafið gerst sek um mikla synd en þú hefur enn færi á því að segja Guði að þér þyki þetta leitt.“

Eldri stúlkan fór hörðum orðum um föður sinn í yfirlýsingu sem amma hennar las upp fyrir hana. Hún sagðist elska föður sinn heitt en að faðir hennar væri þó ófær um að elska aðra en sjálfan sig.

„Þú hefur þegar valdið fjölskyldu þinni og heiminum gífurlegum sársauka. Það minnsta sem þú gætir gert er að gangast við því. Og svo það komi fram þá ætla ég mér ekki að heimsækja þig,“ sagði Alissa og vísaði þar til fangelsisins þar sem faðir hennar mun dvelja til æviloka.

Liggja á gröf móður sinnar

Stúlkurnar munu nú alast upp hjá móðursystur sinni og eiginmanni hennar, Kaylu og Matthew Keyt. Að sögn fósturforeldranna hafa stúlkurnar átt mjög erfitt og eru farnar að efast um kristna trú sína. Ef Guð væri til, hvers vegna myndi hann leyfa þessu að gerast?

Matthew lýsti því fyrir dómara að stúlkurnar fari daglega að gröf móður sinnar.

„Ég fylgist með þeim gráta og tala við hana. Þær liggja gjarnan á grasinu við legsteininn hennar því þeim finnst þær þá aðeins nærri móður sinni.“

Segist enn saklaus

Caleb hágrét á meðan yfirlýsingar stúlknanna voru lesnar upp og eins á meðan hann las upp eigin yfirlýsingu þar sem hann harmaði að fá ekki að ala dætur sínar upp og fyrir að hafa gerst sekur um hjúskaparbrot. Hann hefur þó enn ekki gengist við morðinu.

„Ég myrti ekki eiginkonu mína. Ég er ekki að ljúga þegar ég segist ekki hafa myrt eiginkonu mína. Ég mun halda áfram að berjast fyrir sakleysi mínu svo lengi sem Guð leyfir.“

Hann sagði dætur sínar það besta sem hann hefur gert í lífinu. Hann elskar þær og er stoltur af þeim. Hann bað þær um að lifa með Guði.

Sönnunargögnin í málinu þóttu svo sannfærandi að það tók kviðdóm aðeins tvær klukkustundir að komast að einróma niðurstöðu. Dómari tók í dag fram að glæpur Calebs væri viðurstyggilegur og óafsakanlegur.

„Af öllu því hræðilega sem þú sagðir og gerðir þá þurfti hjónabandi þínu ekki að ljúka eins og því gerði. Því þurfti ekki að ljúka með grimmilegu og skipulögðu morði eiginkonu þinnar, Ashley, móður barna þinna, á hennar eigin heimili.“

Caleb hefði getað sótt um lögskilnað en „þess í stað í græðgi þinni, sjálfselsku, losta og grimmd ákvaðstu að svipta Ashley lífi.“

Þar með hafi hann svipt dætur sínar sakleysi sínu og móður.