Pressan

Aftökusveitin kölluð til eftir 65 ára hlé – Donald Trump gefur grænt ljós

Mynd
Nidal Hasan verður leiddur fyrir aftökusveit Bandaríkjahers. Mynd/Getty

Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur tilkynnt að Nidal Hasan, sem myrti 13 manns í skotárás í Fort Hood-herstöðinni í Texas árið 2009, verði tekinn af lífi af aftökusveit.

Verði dauðadómnum fullnægt verður þetta fyrsta aftaka á vegum Bandaríkjahers síðan árið 1961, eða í 65 ár. ABC News greinir frá þessu.

Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, mælti með því að Hasan yrði tekinn af lífi og hefur Donald Trump Bandaríkjaforseti samþykkt aftökuna, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá Pentagon.

Ekki hefur enn verið ákveðið hvar eða nákvæmlega hvenær aftakan fer fram. Samkvæmt reglum hersins þarf hún þó að fara fram innan 150 daga frá samþykki forsetans en ekki má framkvæma hana fyrr en að minnsta kosti 60 dagar eru liðnir.

Hasan var geðlæknir í Bandaríkjaher þegar hann hóf skothríð í Fort Hood-herstöðinni þann 5. nóvember 2009. Tólf hermenn og einn óbreyttur borgari létust í árásinni og 32 til viðbótar særðust.

Hasan var skotinn og særðist alvarlega áður en hann var yfirbugaður. Árið 2013 var hann fundinn sekur um 13 morð að yfirlögðu ráði og 32 morðtilraunir og dæmdur til dauða. Síðan þá hefur hann verið vistaður í herfangelsinu í Fort Leavenworth í Kansas.

ABC News greindi frá því í sumar að herinn hefði þegar hafið undirbúning að því að taka Hasan af lífi.

Bandaríkjaher hefur ekki framkvæmt aftöku síðan árið 1961. Þá var hermaðurinn John Bennett tekinn af lífi eftir að hafa verið dæmdur fyrir nauðgun og tilraun til að myrða ellefu ára stúlku í Austurríki. Allt stefnir því í að rúmlega sextíu ára hlé á aftökum innan Bandaríkjahers endi með aftöku Hasans á næstu mánuðum.