Bandarískur karlmaður hefur verið handtekinn og ákærður fyrir tvö morð sem framin voru í Indiana fyrir rúmum 20 árum. Málið hefur vakið mikla athygli, ekki síst vegna þess að hinn grunaði var aðeins 14 ára þegar morðin voru framin.
Michael Jerome James, sem nú er 35 ára, var handtekinn á heimili sínu í Shelbyville á föstudag. Hann er sakaður um að hafa myrt Chynna Dickus, 26 ára, og stjúpson hennar, Blake Dickus, sem var aðeins tíu ára.
Chynna og Blake fundust látin á heimili fjölskyldunnar í Franklin í júlí árið 2006. Sean Dickus, eiginmaður Chynna og faðir Blake, kom að þeim þegar hann sneri heim úr vinnu.
Chynna hafði verið stungin til bana en Blake hafði verið stunginn og barinn auk þess sem hann hafði verið kæfður.
Réttað yfir honum sem fullorðnum
Morðin hafa verið óupplýst allar götur síðan en lögregla segist aldrei hafa gefist upp á rannsókninni. Í gegnum árin hafa rannsakendur farið aftur yfir sönnunargögn, fylgt nýjum vísbendingum og nýtt sér framfarir í réttarrannsóknum.
Saksóknarar hafa ekki upplýst hvaða sönnunargögn urðu til þess að James var handtekinn og ákærður.
Lance Hamner, saksóknari í Johnson-sýslu, segir að kviðdómur hafi farið yfir sönnunargögn málsins í þrjár vikur áður en James var ákærður. Sönnunargögnin virðast því nokkuð sterk. Þrátt fyrir að hann hafi aðeins verið 14 ára þegar Chynna og Blake voru myrt segir Hamner að réttað verði yfir honum sem fullorðnum.
Enn liggur ekki fyrir hvert tilefni morðanna var eða hvort og þá hvernig James tengdist Dickus-fjölskyldunni.
James ólst upp aðeins nokkrum kílómetrum frá heimili fjölskyldunnar, samkvæmt heimildarmanni WTHR sem þekkir til rannsóknarinnar. Hann fæddist í Texas en flutti til Indiana eftir að frænka hans tók hann að sér í kjölfar andláts móður hans.
Ýmsar kenningar
Lögregla hefur í gegnum tíðina rannsakað ýmsar kenningar um morðin. Árið 2015 var meðal annars kannað hvort innbrot á svæðinu gætu tengst málinu, en eitt slíkt var framið sama dag og morðin voru framin. Einnig var kannað hvort málið gæti tengst heimilisofbeldi.
Kirby Cochran, lögreglustjóri í Franklin, segir handtökuna afrakstur tveggja áratuga þrotlausrar rannsóknarvinnu.
„Í 20 ár hafa fjölskyldur Blake og Chynna þurft að bera byrðar ólýsanlegs missis og beðið eftir þessum degi,“ sagði Cochran.
Hann sagði lögreglu aldrei hafa gleymt fórnarlömbunum né hætt að leita réttlætis fyrir fjölskyldur þeirra.
Lögregla telur ekki að fleiri hafi komið að morðunum og er ekki leitað að öðrum grunuðum.
Handtaka James kom aðeins nokkrum dögum eftir að verðlaun fyrir upplýsingar um málið voru fjórfölduð og hækkuð í 100 þúsund dali, jafnvirði um 12 milljóna króna.