Pressan

Var aðeins 13 ára þegar sex voru skotnir - Fékk fyrirmæli í gegnum Signal

Mynd
Lögreglan í Svíþjóð. Mynd/Pexels

Réttarhöld hófust í Gävle í Svíþjóð í morgun í máli drengs sem grunaður er um að hafa skotið sex manns í október í fyrra. Drengurinn var aðeins 13 ára þegar skotárásin var gerð.

Málið hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð, ekki aðeins vegna ungs aldurs drengsins heldur einnig vegna gruns um að háttsettur maður innan hins alræmda Foxtrot-glæpanets hafi fengið hann til verksins.

SVT greinir frá því að drengurinn sé grunaður um að hafa hleypt af níu skotum á Södra Kungsgatan í Gävle rétt fyrir klukkan tvö aðfaranótt 4. október í fyrra. Sex ungmenni urðu fyrir skotum, sum þeirra undir 18 ára aldri, en enginn særðist þó lífshættulega. Saksóknari telur að mun fleiri, eða 29 manns nánar tiltekið, hafi verið í hættu.

Vegna þess hversu ungur drengurinn var þegar árásin var framin mun hann ekki hljóta refsingu. Réttarhöldin snúast þess í stað um að skera úr um hvort hann hafi framið brotin sem honum eru gefin að sök.

Fékk fyrirmæli í gegnum Signal

Rannsóknin bendir til þess að skotárásin hafi verið gerð að undirlagi annarra. SVT segir að drengurinn hafi fengið fyrirmæli í gegnum dulkóðaða samskiptaforritið Signal.

Ali Shehab, sem er sagður lykilmaður innan Foxtrot-glæpanetsins, er grunaður um að hafa fengið drenginn til verksins. Shehab afplánar lífstíðarfangelsisdóm í Írak.

Samkvæmt gögnum rannsóknarinnar fékk drengurinn aðgang að íbúð þar sem hann gat dvalið og er hann talinn hafa samþykkt að „drepa einhvern fyrir mikla peninga“. Rannsóknin hefur hins vegar ekki leitt í ljós að neinn þeirra 29 sem voru á svæðinu hafi verið fyrirfram ákveðið skotmark.

Skaut með stolinni lögreglubyssu

Enn ein óvenjuleg vending varð þegar í ljós kom hvaðan annað vopnið kom.

Um var að ræða SIG Sauer P239-skammbyssu sem hafði verið stolið úr ómerktum lögreglubíl við verslunarmiðstöðina Bromma Blocks í Stokkhólmi árið 2018. Lögreglumaður hafði skilið vopnið eftir í bílnum, gegn reglum, og hvarf það þegar brotist var inn í bifreiðina.

Byssan fannst ekki aftur fyrr en hálfu ári eftir skotárásina í Gävle – þá við skóla í Uppsölum. Annað vopn sem talið er hafa verið notað í árásinni hefur ekki fundist.

Eftirlitsmyndavél í grenndinni náði hljóðinu af árásinni. Fyrst heyrast sjö skot og eftir tólf sekúndna hlé er tveimur skotum til viðbótar hleypt af.

Átti að taka hann í umsjá sama dag

Réttarhöldin hófust við héraðsdóminn í Gävle í morgun og verða haldin fyrir luktum dyrum. Þau eiga að standa yfir í sjö daga.

Drengurinn verður ekki sjálfur í réttarsalnum heldur verður upptaka af yfirheyrslu hans spiluð fyrir dóminn.

Aðeins nokkrum klukkustundum áður en skotárásin var gerð hafði félagsþjónustan í Gävle ákveðið að taka drenginn í sína umsjá. Það tókst hins vegar ekki þar sem ekki náðist í hann.