Pressan

Vændishússtjóri segir þetta vera villtustu fantasíuna sem viðskiptavinur hefur nokkru sinni beðið um

Mynd
Úr þýsku vændishúsi. Mynd:EPA/BORIS ROESSLER

Það þarf örugglega mikið til að konurnar, sem starfa á stærsta löglega vændishúsinu í Evrópu, lyfti brúnum yfir óskum viðskiptavina sinna. En Catherine De Noire, sem er 31 árs forstjóri vændishússins, hefur séð hluti sem myndu væntanlega fá flesta til að missa andlitið.

Noire, sem hefur verið í bransanum í 10 ár, mætti nýlega í Honesty Box-Show LADbible þar sem hún skýrði frá undarlegustu óskinni sem viðskiptavinur hefur komið með í vændishúsinu og greiddi fúlgur fjár fyrir að fá uppfyllta.

Og það ótrúlega við þessa ósk viðskiptavinarins er að hún snýst bara alls ekki um kynlíf.

Noire sagði að hér væri um fastakúnna að ræða sem lifir ósköp venjulegu lífi og er kvæntur. En þegar hann kemur í vændishúsið skiptir hann algjörlega um karakter. Hann hefur með sér tösku fulla af hlutum sem maður sér yfirleitt bara í gæludýraverslunum. Þetta er hundanammi, vatnsskál, hálsól fyrir hunda og hundakarfa.

Heimsóknir hans vara í átta klukkustundir og á þeim tíma er maðurinn í hlutverki hunds, hefur meira að segja sitt eigið hundanafn.

„Hann er í raun bara hundur. Konan, sem hann pantar tíma hjá, gefur honum skipanir á borð við „sittu“, „leggstu“ og „hér er nammi“. Það klikkaða í þessu er að hún má hafa aðra viðskiptavini í herberginu á meðan hann er þar,“ Sagði Noire.

Á meðan vændiskonan sinnir vinnunni sinni og stunda kynlíf með öðrum körlum, þá fer fastakúnninn um gólfið á fjórum fótum og horfir á. Til að fullkomna hlutverk sitt sem hundur, þá sleikir hann oft fætur viðskiptavinanna og nartar í skóna þeirra. Svona eins og hvolpur myndi gera.

Þegar átta klukkustundirnar eru liðnar, stendur þessi „venjulegi maður“ upp, pakkar öllu saman og fer heim til konunnar.