Pressan

Þessi matvæli geta tengst auknum líkum á blöðruhálskrabbameini

Mynd
Grænmeti virðist vinna gegn blöðruhálskrabbameini. Mynd/Getty

Blöðruhálskrabbamein er algengasta tegund krabbameins hjá bandarískum karlmönnum að sögn bandarísku krabbameinssamtakanna American Cancer Society.

Samtökin reikna með að tæplega 334.000 ný smit greinist á þessu ári.

Í rannsókn, sem hefur verið birt í vísindaritinu The American Journal of Clinical Nutrition, kemur fram að karlar sem eru grænmetisætur séu í 35% minni hættu á að fá blöðruhálskrabbamein en karlar sem borða ekki bara grænmeti.

Önnur rannsókn, sem hefur verið birt í Journal of Clinical Oncology, sýndi að það voru minni líkur á karlar, sem borðuðu mest af grænmeti, fengju blöðruhálskrabbamein.

Í enn einni rannsókninni, sem var birt í Physicians Committee for Responsible Medicine, kom fram að 66% karla myndu íhuga að forðast ákveðnar tegundir matar eftir að þeim var skýrt frá hugsanlegum tengslum við blöðruhálskrabbamein.

Þessar matartegundir eru mjólk og aðrar mjólkurvörur en aðeins 20% karlanna  vissu að mjólkurvörur geta aukið líkurnar á að fá blöðruhálskrabbamein.