Marie-Celestin Karondwa, stjórnmálamaður úr röðum UDPS flokksins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, var barinn til dauða nýlega eftir að hann ræddi um ebólu í útvarpinu en ebólufaraldur geisar í landinu.
Metro segir að hann hafi talað fyrir smitvörnum til að takast á við útbreiðslu ebólu. Það var síðan ráðist á hann í hverfinu, þar sem hann bjó, eftir að þættinum lauk.
Rúmlega 4.000 manns hafa látist af völdum ebólu síðan faraldurinn braust út.
UDPS segir að eftir að Karondwa var barinn til dauða hafi eigum hans verið stolið og síðan hafi verið kveikt í húsinu hans.
Ekki er vitað af hverju var ráðist á hann en hitt er vitað að í landinu er ekki óalgengt að heilbrigðisstarfsfólk, sem vinnur við að ráða niðurlögum faraldursins, verði fyrir árásum. Það sama á við um fólk sem ræðir opinberlega um hann.
Mikið er um falsfréttir varðandi faraldurinn og röngum upplýsingum er oft dreift, þar á meðal um að ebóla sé ekki til. Þetta hefur ýtt undir ofbeldisverk.