Svo margir Bandaríkjamenn deyja ótímabærum dauða að tíðnin er miklu hærri en í nokkru öðru landi sem dánartíðnin er borin saman við. Í nýrri rannsókn varpar þekktur bandarískur læknir ljósi á hversu slæm staðan er.
Steven H. Woolf er læknir og prófessor við Virginia Commonwealth University og er þekktur á alþjóðavettvangi fyrir víðtækar rannsóknir á lýðheilsu og ójöfnuði í heilbrigðiskerfinu síðustu fjóra áratugi.
Hann birti nýlega nýja stóra rannsókn þar sem hann fór í gegnum mikið magn bandarískra og alþjóðlegra gagna um dánartíðni.
Í stuttu máli sagt rannsakaði hann: Af hverju deyja Bandaríkjamenn? Hver er munurinn á þeim og öðrum löndum sem Bandaríkin bera sig venjulega saman við?
Niðurstöðurnar eru vægast sagt slæmar hvað varðar lýðheilsu Bandaríkjamanna. Sérstaklega hvað varðar ungt fólk.
Lifa skemur í Mississippi en í Norður-Kóreu
Á yfirborðinu virðist bandarísk lýðheilsa kannski vera leyndardómsfull. Stærsta hagkerfi heims er í landinu og dýrasta heilbrigðiskerfi heims.
Bandaríkjamenn eyða að meðaltali 14.885 dollurum á ári í heilbrigðismál og eru opinber sjúkratryggingakerfi inni í þeirri tölu sem og þær tryggingar sem fólk kaupir sér sjálf og það sem það greiðir úr eiginn vasa. Jótlandspósturinn skýrir frá þessu.
En þessi miklu útgjöld skila sér ekki í góðu heilsufari þjóðarinnar því Bandaríkjamenn lifa mun skemur en fólk í samanburðarlöndunum og munurinn hefur aukist að undanförnu.
Samkvæmt rannsókn Woolfs, sem hefur verið ritrýnd og birt í vísindaritinu The Milbank Quarterly, eru Bandaríkin í þrítugasta og áttunda sæti hvað varðar væntanlegan lífaldur. 1980 voru Bandaríkin í fjórtánda sæti.
Bandaríkin standa ekki bara ríkum löndum á borð við Kanada, Japan, Ástralíu og Nýja-Sjálandi að baki. Þau standa einnig austurevrópskum löndum á borð við Slóveníu og Tékklandi að baki, suðuramerískum löndum eins og Chile, Kosta Ríka og Panama, Miðausturlöndum á borð við Katar, Kúveit og Óman og Asíuríkjum á borð við Suður-Kóreu, Singapúr og Taívan.
Þegar þau svæði í Bandaríkjunum, þar sem staðan er verst, eru skoðuð, er myndin enn verri. Woolf bendir sérstaklega á að lífaldurinn í Vestur-Virginíu og Mississippi var 71 ár árið 2021 en það svarar til stöðunnar í Búlgaríu, Bangladess og Írak og meira að segja Norður-Kóreu og Sýrlandi sem teljast afskaplega fátæk ríki.