Pressan

Meghan er sögð brjáluð – Neitar að láta Vilhjálm og Katrínu ýta sér til hliðar

Mynd
Vilhjálmur, Kate, Meghan og Harry.

Það kom eins og þruma úr heiðskíru lofti þegar Harry prins og Meghan eiginkona hans kvöddu sólarlífið í Kaliforníu og fluttu aftur til Bretlands. Ef þau vonuðust eftir að konungsfjölskyldan myndi taka þeim opnum örmum, þá höfðu þau rangt fyrir sér.

Heimkoman hefur valdið sannkölluðu hallardrama þar sem einn mótleikur konungsfjölskyldunnar hefur að sögn hleypt mjög illu blóði í Meghan. Nokkrum dögum eftir heimkomuna hófust vandræðin þegar hjónin ákváðu að láta börnin sín skipta um skóla og í kjölfarið fóru orðrómarnir af stað.

Voru hjónin að undirbúa sig undir endurkomu í konungshöllina? Þetta var svo mikið rætt og skapaði svo mikinn óróa að Karl konungur sá sig að lokum tilneyddan til að birta opinbert bréf til að skýra hlutina. Newsner skýrir frá þessu.

Í bréfinu, sem var sent til hersins og helstu stjórnmálaleiðtoga landsins, sló konungurinn því föstu að hjónin séu ekki lengur „starfandi meðlimir konungsfjölskyldunnar“ og að þau geti ekki notað titlana „konunglegu hátignir“.

Í kjölfar bréfsins sögðu Harry og Meghan að þau væru mjög hissa á þessu.

Nú eru nýjar upplýsingar komnar fram sem eru eins og olía á eldinn. Þær eru að það var ekki Karl konungur sem samdi bréfið, það voru Vilhjálmur krónprins og Katrín hertogaynja, eiginkona hans. Ástæðan er að sögn að Vilhjálmur er langþreyttur á ringulreiðinni í kringum bróður sinn.

Það hefur verið kalt á milli bræðranna árum saman og ljóst að lítið traust ríkir þeirra á milli. Þess vegna er Vilhjálmur sagður hafa brugðist hratt við til að sýna hver ræður og hvar mörkin eru.

Hann og Katrín treysta Harry og Meghan að sögn ekki eftir allt það sem hefur gengið á undanfarin ár.

Meghan er sögð öskureið yfir þessu og hafi ekki í hyggju að láta konungsfjölskylduna ýta sér til hliðar eða koma fram við hana eins og hún sé ekki lengur mikilvæg, sérstaklega ekki af Vilhjálmi og Katrínu.