Flest höfum við örugglega heyrt mýtuna um að stórir fætur séu ávísun á að karlkyns eigandi þeirra sé með stóran getnaðarlim. Svo er önnur mýta sem segir að stórar hendur séu ávísun á stóran getnaðarlim.
En ef þú hefur eytt tíma í að skoða skóstærð karla eða hendur þeirra, þá eyddirðu tímanum til einskis því stærð þessara líkamshluta segir ekkert til um stærð getnaðarlimsins.
En það gerir hins vegar annar líkamshluti að sögn læknisins Rena Malik. Hún kom nýlega fram í hlaðvarpinu „Diary of a CEO“ og afhjúpaði þar hvaða sjáanlegi líkamshluti sýnir stærð getnaðarlimsins.
Það er nefið sem segir til um stærð getnaðarlimsins.
Þetta hljómar kannski eins og einhver mýta eða flökkusaga en Mali byggir þetta á japanskri rannsókn frá 2021. 126 karlar tóku þátt í henni og niðurstöðurnar tala sínu máli.
Langt nef – Karlar með nef lengra en 5,6 cm (mælt frá rótinni að nefbroddinum) reyndust að meðaltali vera með 13,5 cm langan getnaðarlim.
Stutt nef – Karlar með nef styttra en 4,6 cm reyndust að meðaltali vera með 10,4 cm langan lim.
Framhaldsrannsókn, sem var gerð 2023, sýndi sömu niðurstöður.
Þetta bendir til að lengd „stoltsins“ sá ákveðin fyrir fæðingu og komi því ekkert við hversu háir eða þungir karlar eru.