Við lifum á tímum þar sem það þykir alveg sjálfsagt að prófa margt og það gildir einnig í kynlífinu. Makaskiptaklúbbar og villtar orgíur heilla suma en aðrir láta sér nægja að gera „kynlífstilraunir“ heima í svefnherberginu.
En þrátt fyrir tilraunagleðina þá er eitt sem ótrúlega margir karlar og konur falla auðveldlega á – að koma orðum að hlutunum þegar búið er að fækka fötum.
Gott dónatal getur kynt vel undir stemmningunni en röng ummæli á röngum tíma geta slökkt eldsnöggt á öllu.
Hópur kynlífsfræðinga ræddi við tímaritið VICE um hvað sé það versta sem er hægt að segja í svefnherberginu, það sem drepur stemmninguna á augabragði.
„Ertu ekki að verða búin(n)? – Þetta er svar svefnherbergisins við því að sitja í aftursæti bíls og segja: „Erum við ekki að verða komin?“. Þetta flýtir auðvitað ekki fyrir, þvert á móti. Þessi setning er svo svakalegur stemmningsmorðingi að hún gerir eiginlega ekkert annað en að tefja fyrir hlutunum af því að hinn aðilinn verður svo stressaður við að fá þessa spurningu.
„Af hverju andarðu svona þungt?“ – Verum bara hreinskilin – kynlíf krefst áreynslu. Ef þú ert ekki íþróttamanneskja í fremstu röð, þá muntu stynja og anda eins og slitin gufuvél þegar þú ert að ná lokapunktinum. Ef annar aðilinn finnur hjá sér þörf fyrir að benda á það sem fólk getur verið óöruggt um í þessari stöðu, þá er bara verið að auka spennuna. Taktu þungum andardrætti frekar sem merki um að hinn aðilinn leggi sig allan fram.
Ógeðssvipurinn – Stundum þarf ekki einu sinni að segja neitt til að eyðileggja hlutina. Ef annar aðilinn lítur upp og mætir andlitssvip sem sýnir hrylling eða viðbjóð þá gerir það algjörlega út af við sjálfsálitið. Þetta getur eyðilagt traustið í sambandinu á örskotsstund. Ef stellingin eða eitthvað annað virkar ekki fyrir þig, þá skiptu bara um stellingu eða leiðbeindu hinum aðilanum á skemmtilegan hátt í staðinn fyrir að setja upp svip sem líkist því að þú hafir stigið í hundaskít.
„Er þetta í fyrsta sinn?“ – Ef þú ert með einhverjum sem er algjör byrjandi í kynlífi, þá mun þessi spurning ekki gera neitt nema láta viðkomandi líða mjög illa og finnast hann niðurlægður. Ef þú segir þetta við einhvern sem telur sig reynda(n) í kynlífinu, þá svíður vel undan þessum orðum.
„Er eðlilegt að svitna svona mikið?“ – Þegar allt er á fullu undir sænginni, þá svitnar fólk, sérstaklega á heitri sumarnótt. Þetta er fullkomlega eðlilegt, líffræðileg viðbrögð við erfiðisvinnu eins og kynlíf getur verið. Að benda á svitann eins og hann sé ógeðslegur er hið endanlega náðarhögg fyrir sjálfsálit hins aðilans.