Hinn vinsæli hlaðvarpsþáttastjórnandi Joe Rogen ræddi nýlega um gervigreind í hlaðvarpinu sínu og lýsti yfir áhyggjum sínum af hverju gervigreind getur tekið upp á framtíðinni.
Þetta gerði Rogan þegar hann ræddi við Sam Morril í lok september. Rogan sagði meðal annars: „Þetta er 1984 á sterum. Þetta er líka The Terminator á sterum og einnig The Matrix.“
„Við höfum enga hugmynd um hvert þetta stefnir. Ég held að við séum í vanda,“ sagði hann og bætti við að hann teldi okkur vera í þannig vanda sem við teljum okkur ráða við núna en gervigreindin sé farin að brjótast inn á heimasíður, það sé ekki stórmál, og spurði svo hvað gerist þegar gervigreindin tekur stjórn raforkukerfanna yfir?
Varðandi innbrot á heimasíðu vísaði hann til nýlegrar afsökunar OpenAI eftir að gervigreind fyrirtækisins braust inn á heimasíðu hins opinbera í Ástralíu.
Sérfræðingar á sviði gervigreindar hafa varað við hættunni sem mannkyninu getur stafað af gervigreind og hvetja til varkárni við þróun hennar án þess að nægilegar varnir séu til staðar.