Pressan

Hversu langur á hinn fullkomni blundur að vera?

Mynd

Þú færð þér smá blund til að hvíla höfuðið aðeins. Hálftíma síðar hringir vekjaraklukkan og þú vaknar þungur, ringlaður og næstum þreyttari en áður en þú lagðir þig. Þetta er bein afleiðing af hversu djúpum svefni þú náðir.

Ný rannsókn, sem hefur verið birt í vísindaritinu Scientific Reports, varpar ljósi á þrjú stig blunds. Fram kemur að hvert stig hefur ákveðið hlutverk og áhrif.

Vísindamennirnir segja að eftirtaldar þrjár tímalengdir henti vel til að ná mismunandi markmiðum. Stuttur orkusvefn, minnisblundur eða fullur svefn. Þeir hafa mismunandi áhrif.

10-20 mínútna orkublundur – Orkublundur er skilgreindur sem 10-30 mínútna svefn. Hann er góður til að koma í veg fyrir að maður vakni þungur, ringlaður og næstum þreyttari en fyrir blundinn.

Í þessum stutta blundi nær fólk yfirleitt bara léttu svefnstigunum og á því auðvelt með að vakna.

Um 30 mínútur – Ef þú vilt bæta minnið þá benda rannsóknir til að 30 mínútna blundur sé kjörinn til að bæta minnið.

Honum fylgir þó sá galli að það er hætta á að maður vakni þungur, ringlaður og næstum þreyttari en fyrir svefninn. En það jákvæða er að þessi einkenni hverfa á tæpum hálftíma eftir að vaknað er.

90 mínútur – Þessi langi blundur samanstendur af léttum svefni, djúpum svefni og REM-svefni.

Blundur af þessari lengd veldur venjulega skammvinnri þreytu að honum loknum.