Pressan

Hjartalæknir segist forðast þetta eftir klukkan 18

Mynd
Mynd úr safni. Mynd:Getty

Flestir tengja heilbrigði hjartans við hollt mataræði og hreyfingu en eftir því hjartalæknirinn Francesco Lo Monaco segir þá skiptir ekki minna máli hvað maður gerir á kvöldin.

Onet skýrir frá þessu og segir að eftir því sem læknirinn segi þá sé líkaminn að undirbúa sig undir hvíld á kvöldin. Ef þetta ferli sé truflað, geti það haft áhrif á svefninn og starfsemi hjartans.

Ljós frá síma, sjónvarpi og tölvum geta verið truflandi. Ljósið getur dregið úr framleiðslu melatóníns sem hjálpar til við svefninn og verndar æðarnar.

Notkun á sterku munnskoli getur einnig haft neikvæð áhrif því það getur haft áhrif á bakteríur, sem styðja við starf æðakerfisins, í munninum.

Erfið líkamsþjálfun seint að degi getur einnig haft neikvæð áhrif, sérstaklega af maður hefur verið stressaður yfir daginn.

Ýmis fæðubótarefni, sem eru venjulega notuð til að slaka á, geta haft áhrif á svefninn og hjartaryþmann en áhrifin eru mismunandi á milli einstaklinga.

Sumar öndunaræfingar geta haft neikvæð áhrif ef þær fela í sér að fólk þurfi að halda andanum niðri í langan tíma.

Þess utan getur kvöldmaturinn haldið líkamanum gangandi þegar hann á að hvílast að sögn læknisins.